Í ljósi nýlegrar skattlagningar á dömubindi og túrtappa í Bretlandi og samskonar umræðu heima á Íslandi, tóku MJ Ashton listakona í London, Ellamae Cieslik ljósmyndari og Ingunn Lára Kristjánsdóttir leikari og leikskáld upp á því að skapa feminískt listaverk, yfirlýsingu til að mótmæla þessum “Non-Essential luxury item” skatti eins og hann er titlaður.

Inga Lára
Glæsilegir kjólar, kampavín og auðvitað aðal lúxusinn: blóðugir túrtappar og dömubindi, blönduðust saman er konurnar voru ljósmyndaðar í sínu náttúrulega kvenlega formi.
“Þegar ég heyrði fyrst fréttirnar um skattinn, þá blöskraði mér svo að ég fann legið mitt dragast saman í reiði. Það að ég ætti að borga enn meira fyrir mánaðarlega sprengingu líkama míns, eitthvað sem ég hef enga stjórn á og þarf persónulega á að halda, er algjörlega fáránlegt,“ segir MJ Ashton.

M J Ashton
„Við tókum þá ákvörðun að setja saman listrænar myndir til að leggja áherslu á kaldhæðnina bak við það að dömubindi og túrtappar séu „lúxus vörur“, bætir Ellamae við.

Ellamae Cieslik
Eftir myndatökuna þróuðu þær áfram verkefni sitt og héldu meðal annars ljóða- og einræðukvöld, allt tengt sama túr þemanu í anda áttunda áratugar feminíska leikhússins.
Á næsta ári munu þær halda ljósmynda-sýningu í leiklistarskólanum Rose Bruford þar sem þær kynntust allar fyrst, en Ingunnútskrifaðist þaðan af ‘American Theatre Arts‘ brautinni árið 2014.
Hér má lesa bút úr verki Ingunnar:
“It´s quite brilliant, actually… Growing up and having people around us; boys from school, gym teachers, politicians, television shows, all have deemed my period a dirty little secret. Something to be hidden away and not talked about. And now they’re taxing this bloody secret! I actually have to pay more for something I need to use, not what I necessarily want to use. I actually need these products to contain and hide my evidence of fertility. This has gone so far, to the point where young girls and women in India and Uganda are missing a week’s worth of education because they are forced to hide away in their homes for their monthly bleed-out and cleansing of their womb. Tampons and sanitary towels are indeed a luxury many women can’t afford or don’t have access to”. “Don’t gross out the boys, please don´t show us how your body is miraculous. It’s disgusting and actually we’re going to make you pay for it. And it’s not like you’ll say anything about it because it’s so terribly awkward to talk about.” Well this time I speak. It is time for men to stop making decisions about women´s bodies. PERIOD.”
Það besta við verkefnið var jákvæðni og ástríða allra kvennanna sem komu að sköpuninni. Allar skemmtu sér vel og frábærar umræður og hugmyndir urðu til.
Þetta voru konur að lofsyngja konur.
Stuck Up Cunts
MJ Ashton
Ellamae Cieslik
Ingunn Lára