NÝTT FANGELSI Í NUUK
Eftir rétt rúmlega ár verður fyrsta lokaða fangelsið á Grænlandi tekið í notkun, en hingað til hafa þeir sem dvalið hafa í lokuðum fangelsum verið sendir til Danmerkur í afplánun. Í dag eru hins vegar rekin sex fangelsi á Grænlandi sem öll eru opin og flestir vistmenn sinna vinnu utan fangelsis.
„Grænlenskt réttarfar leggur ekki áherslu á refsingar heldur á stuðning og aðstoð við brotamanninn“, sagði Hans Jørgen Engbo, fangelsismálastjóri á Grænlandi í viðtali sem sýnt var í fréttum RÚV í haust. Það er í samræmi við skilning almennings þar, en skv. skoðanakönnun telja 77% aðspurðra tilgang dóma eigi að vera aðstoð og stuðningur við dómþola – ekki hefnd samfélagsins.
SJÁ EINNIG: upplýsingabækling Betrunarstofu Grænlands
Nýja fangelsið mun rúma 76 einstaklinga, en aðeins 40 rými verða fyrir lokaða hluta fangelsisins – hin 36 verða opin rými. Það þýðir að aðeins rúm tuttugu prósent af fangelsisrýmum á Grænlandi verða í lokuðu fangelsi, en lang stærsti hlutinn verður áfram opin fangelsi með áherslu á að endurhæfingu – og að einstaklingurinn verði áfram hluti af samfélaginu.
Með það fyrir augum er hugmyndafræði nýja fangelsisins skýr: hönnunin á að bjóða upp á að upplifa ólíka dagsbirtu sem kallast á við náttúruna – snjó, ís, kletta, mosa, himinblámann, sólina, dag og nótt, fugla og annað dýralíf – með fjölbreyttri uppröðun bygginga. Þá eiga panorama lagaðir gluggar í sameiginlegu rými að veita óhindrað útsýni yfir náttúru og haf.
Hugmyndafræðin er í ætt við það sem þekkist í Noregi þar sem lögð er áhersla á tengsl/snertingu einstaklingsins við náttúruna og að byggja upp brotna einstaklinga í gegnum menntun og vinnu.
Á næsta ári verður tekið í notkun fangelsi á Hólmsheiði sem mun rúma 56 einstaklinga, en fyrir eru rekin fimm fangelsi á Íslandi. Þegar það kemst í gagnið verða einungis rúm tuttugu prósent rýma á Íslandi í opnum fangelsum, en mikill meirihluti verður áfram í lokuðum fangelsum.
SJÁ: How to build better prisons: New designs and a new look at their purpose
Löngu er sannað að einangrunarvist hefur skaðleg áhrif á fólk en kannski færrum er ljóst hvernig löng vist í húsi, sem gefur litla möguleika á að nota skynfærin, eyðileggur t.d. fjarlægðarskyn fólks. Þetta er nokkuð sem haft er að leiðarljósi í nágrannalöndunum við hönnun mannvirkja sem þessara, þar sem tengsl við náttúruna eru höfð að leiðarljósi í lokuðum fangelsum – auk áherslu á að fjölga opnari fangelsum til að auka virkni einstaklinga og undirbúa þá undir þátttöku í samfélaginu að nýju.
En við virðumst ekki ginkeypt fyrir erlendu áliti, jafnvel þó það byggi á rannsóknum, reynslu og þekkingu. Eftir sitjum við með ónýtt fangelsiskerfi sem skilar af sér fólki sem ófært er til þátttöku í samfélaginu, enda hvorki fengið til þess stuðning meðan á afplánun varir – né eftir að henni lýkur.
Mynd efst í grein/ Í fangelsinu í Nuuk á Grænlandi, sem tekið verður í notkun árið 2017, er lögð áhersla á tengsl við náttúruna.