Ráðherralið kanadísku ríkisstjórnarinnar er framsækið, óhefðbundið og í takt við tímann.
Forsætisráðherra frjálslynda flokksins Justin Trudeau er vísindaskáldsögufrík og sonur fyrrum forsætisráðherra Kanada, Pierre Trudeau. Trudeau yngri er með alvöru háskólagráður í enskum bókmenntum, verkfræði og umhverfislandafræði. Hann tryggði flokki sínum 184 sæti í síðustu kosningum en flokkurinn réði áður yfir 36 sætum. Er þetta mesta fylgisaukning stjórnmálaflokks í sögu kanadískra stjórnmála.
„Í Kanada er ráðherrastóll tileinkaður innflytjendamálum, landvistarleyfum og FLÓTTAFÓLKI.
Einn ráðherra gegnir því embætti að vera umhverfis- og jarðarhlýnunarráðherra.
Heilbrigðisráðherra er læknir.
Barna, fjölskyldu- og félagsmálaráðherra er fátæktarhagfræðingur (Poverty economist).
Vísindaráðherra er… og getið þið nú! Með Nóbelsverðlaun í vísindum!
Heilum ráðherrastóli er varið í stöðu kvenna og í honum situr að sjálfsögðu kona.
Ráðherra sem sér um mál tengd hernum og hermönnum er fjölfatlaður eftir að hafa lifað af skotárás.
Atvinnu- og verkalýðsmálaráðherra er menntaður jarðfræðingur.
Lýðræðismálaráðherra er múslimi og fyrrum flóttamaður.
Ráðherra íþrótta og fötlunarmála er fatlaður íþróttamaður.
Varnarmálaráðherra er fyrrum stríðshetja, barðist í Afganistan og starfaði sem lögreglumaður.
Samgöngumálaráðherra er geimfari.
Helmingur kanadíska ráðherraliðsins eru konur, helmingur karlar.
Tveir ráðherranna eru frumbyggjar og þrír eru fæddir utan Kanada, frá Indlandi og Afganistan.
Tveir ráðherrar eru sikh hindúar.
Einn ráðherra er múslimi.
Tver ráðherranna eru yfirlýstir trúleysingjar.
Einn ráðherranna berst við brjóstakrabbamein
Einn er í hjólastól.
Einn er blindur.
Einn ráðherranna er samkynhneigður og einn … er rauðhærður!“
Lítum nú heim í kvosina okkar
Forsætisráðherra laug því að hann væri með doktorsgráðu frá Oxford og eyddi heilum degi í að föndra menntaskólaskæting með aðstoð morfísþjálfarans daginn sem að ríkisstjórn hans rak fárveikt barn af landi brott og í opinn dauðann.
Fjármálaráðherra er lögfræðingur og rak bensínstöðvar og lét eins og lög kæmu honum ekki við þegar hann skrifaði upp á vafningsbréf fyrir fjölskyldumeðlimi.
Innanríkisráðherra er lögfræðingur, hefur barist við krabbamein, er gift forstjóra Alcoa og dóttir fyrrum Seðlabankastjóra.
Mennta- og menningarmálaráðherra er viðskiptafræðingur, ráðgjafi Orku Energy, býr í húsi vinnuveitanda síns og hefur notað ráðuneyti sitt til að greiða götu hans í Kína.
Heilbrigðisráherra er með kennarapróf og sat í stjórn Söltunarfélags Dalvíkur.
Utanríkisráðherra er með stúdentspróf og vann í sjoppu.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra er með MS próf í alþjóðasamskiptum.
Velferðarráðherra er lausapenni hjá Vaktinni í Vestmannaeyjum.
Umhverfisráðherra er útskrifuð úr Húsmæðraskólanum.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er dýralæknir og afgreiddi í Mjólkursamsölunni.
Þrír ráðherrar af 9 eru konur.
Enginn ráðherra tilheyrir minnihlutahópi.
Einn ráðherra safnar rakettuprikum og munnþurrkum.
Í ríkisstjórninni er ein fyrrverandi flugfreyja, eins og í flestum ríkisstjórnum.
Heimildir: Wikipedia og lauslega þýddur hluti úr frægri Facebookfærslu Alönu Phillips þar sem hún lýsir nýrri ríkisstjórn Trudeau.