Í fyrrakvöld, þann 16. desember, á miðri aðventu þurfa öryrkjar og aldraðir að horfa upp á þá staðreynd að ríkisstjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, gera einhverja sóðalegustu atlögu að fátækasta og verst stadda fólkinu í þessu landi með því að neita þeim um lögbundna, afturvirka, hækkun á bótum almannatrygginga eins og kveður á í 69. grein almannatrygginga en þar stendur skýrum stöfum að bætur almannatrygginga skuli fylgja launaþróun á almennum vinnumarkaði samkvæmt samningum.
Allir þingmenn og ráðherrar í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar eru sekir um lögbrot gagnvart öldruðum og öryrkjum á Íslandi, fimm mínútur í jól, þegar þeir sjálfir hafa fengið hundruð þúsunda og yfir milljónir í afturvirkar kjarabætur til 1. mars á þessu ári en ætla lífeyrisþegum þá smán að lifa í desembermánuði á 172 þúsund til 192 þúsund krónum, borga af húsnæði, greiða reikninga, kaupa lyf, mat og síðast en ekki síst, halda jólin hátíðleg.
Fólk með samvisku hlýtur að spyrja sig hvar siðferði ráðamanna þessarar þjóðar sé og hvernig getur þetta fólk, samvisku sinnar vegna, neitað lífeyrisþegum að lifa mannsæmandi lífi eins og kveður á í 76. grein stjórnarskrár lýðveldisins?
Fólk hlýtur líka að spyrja sig þeirrar spurningar hvernig þingmenn og ráðherrar getið horft framan í börnin sín, maka, foreldra og vini vitandi að úti í samfélaginu eru í kringum 40 þúsund manns sem ríkisstjórnarmeðlimirnir hafa dæmt til að svelta yfir hátíðarnar og einnig að þetta fólk getur ekki gefið sínum nánustu, mökum, börnum og barnabörnum jólagjafir. Það væri óskandi að samvisku þessa fólks sem neitaði lífeyrisþegum að halda jól yrði sparkað all hressilega í gang af fjölskyldum og vinum þessara illa innrættu þingmanna stjórnarflokkanna þó svo að maður viti að það er borin von, því sækjast sér um líkir þegar allt er talið.
Það er mikið talað um að fjölmiðlar á Íslandi og fjölmiðlafólk lúti valdinu og það hefur berlega komið í ljós í baráttu lífeyrisþega fyrir bættum kjörum því þeir hunsa nánast algjörlega baráttuna fyrir bættum kjörum og það litla sem hefur verið fjallað um þessi mál í þeim hefur þá helst verið á þann veg að tala við stjórnmálamenn og þá sér í lagi forystumenn í stjórnarflokkunum þar sem þeir fá að rasa út með málefnið frá sínu sjónarhorni, gagnrýnislaust.
Fólk minnist sjálfsagt þáttarins „Sprengisandur“ sem sendur er út á sunnudagsmorgnum undir stjórn Sigurjóns M. Egilssonar en síðasta sunnudag, 13. des. síðastliðinn, fékk hann Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í þáttinn til sín þar sem Bjarni fór með hver ósannindin á fætur öðrum í beinni útsendingu þáttarins. Sigurjón M. var ekkert að hafa fyrir því að reyna að leiðrétta Bjarna, heldur leyfði honum að rasa þarna út með þvílíkum hatursáróðri í garð lífeyrisþega að undirritaður sat miður sín eftir að hafa hlustað á þáttinn.
Sprengisandur á Bylgjunni þann 13. des. síðastliðinn er í myndspilara neðst í þessum pistli.
Ekki var nú á það bætandi hvernig ráðamenn þessarar þjóðar hafa ítrekað reynt að etja almenningi gegn öryrkjum og öldruðum með því að róa að því öllum árum að þeir séu afætur á þjóðfélaginu og hafi það mikið betra en þeir sem eru í láglaunastörfum í landinu. Síðan er því hvað eftir annað komið á framfæri að núverandi ríkisstjórn hafi gert meira fyrir aldraða og öryrkja en nokkur ríkisstjórn hafi áður gert og þeir hafi það bara helvíti fínt og það sé ekkert annað en frekja að heimta meira.
En Bjarni Ben sló öll fyrri met í viðtali sínu í sjónvarpsfréttum Rúv í gærkvöld þegar hann mætti í beina útsendinu og laug framan í þjóðina án þess að blikna. Það setti ískaldan hroll að undirrituðum og því tók ég mig til eftir að fréttirnar urðu aðgengilegar á netinu, sótti þær og klippti út eftirfarandi bút til að minna fólk á innrætið og siðferðið hjá fjármálaráðherra þjóðarinnar og eins til að fólk sjái þjónkun fjölmiðilsins við valdið. Bjarna leyfðist að komast upp með að ljúga án nokkurra mótmæla frá fréttakonu því það hefði ekki verið nokkurt einasta mál fyrir hana að hrekja orðræðu hans enda eru upplýsingar og staðreyndir um kjör aldraðra og öryrkja öllum aðgengilegar. Það er virkilega vont þegar fréttastofa „allra“ landsmanna lúffar fyrir valdinu gjörsamlega gagnrýnislaust.
Neðst í þessum pistli má sjá klippuna úr fréttum Rúv þann 13. des.
Burt með verstu ríkisstjórn allra tíma.
Það hefur verið sagt að þetta sé versta ríkisstjórn sem setið hefur frá lýðveldisstofnun og því miður verður að segjast eins og er að það er satt. Ekkert af því sem hún lofaði fyrir kosningarnar hefur verið efnt og staða almennings í landinu aldrei verri en nú þegar kjörtímabilið er rúmlega hálfnað enda hefur þessi ríkisstjórn mokað stöðugt undir ríkasta fólkið í landinu en hvað eftir annað svikið almenning um þau loforð sem þeir gáfu í aðdraganda kosninganna 2013 og má þar nefna 300 milljarðana sem átti að sækja í „hrægammasjóðina“ til að rétta af skuldsettustu heimilin í landinu en urðu þegar upp var staðið aðeins 80 og koma úr vasa þeirra sjálfra sem fá leiðréttingu á húsnæðislánunum.
Verðtryggingin stendur enn þrátt fyrir stöðugar fréttir að það sé verið að vinna í að fella hana niður en það átti að gerast strax á vormánuðum 2014 í síðasta lagi. Gjaldeyrishöftin standa enn þrátt fyrir loforð um að þau yrðu afnumin strax eftir kosningar. Virðisaukaskattur á matvæli var hækkaður um fjögur prósent sem gerði það að verkum að kaupmáttur þeirra sem lægstar hafa tekjurnar rýrnaði gífurlega, enda hafa matvæli hér á landi aldrei verið dýrari heldur nú til dags og það er svo komið að þeir sem lægstar hafa tekjurnar hafa ekki lengur efni á hollum og góðum mat en láta sér duga það ódýrasta og versta sem það getur fundið í verslunum landsins.
Veiðigjöld á útgerðirnar voru lækkuð umtalsvert og orkuskattur aflagður sem minnkar tekjur ríkissjóðs um 12 til 14 milljarða á ársgrundvelli en á sama tíma eru álögur á almenning í samfélaginu auknar og hann í stöðugt ríkara mæli látinn standa undir útgjöldum ríkisins meðan þeir ríku verða enn ríkari á kostnað almennings.
Ljótustu og verstu svikin við almenning, og þá sérstaklega öryrkja og aldraða, er að skilja þá eftir í leiðréttingu á kjörum sínum því þar brýtur ríkisstjórnin, öll eins og hún leggur sig, lög um almannatryggingar og eins 76. grein stjórnarskrárinnar meðan þeir sjálfir fengu 10 mánaða, afturvirka hækkun á sín laun og auk heldur 148 þúsund krónur í desemberuppbót meðan lífeyrisþegar fengu skitin 20 þúsund og engar afturvirkar hækkanir eins og lög kveða á um.
Því er það algjörlega og bráðnauðsynlegt að almenningur fari að taka sig saman og koma þessari verstu ríkisstjórn allra tíma frá völdum áður en það verður of seint og þeir nái að eyðileggja það sem búið var þó að byggja upp hér eftir hrunið 2008.