Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ræður ráðherra

$
0
0

Á þessu þingi hefur forsætisráðherra sætt nokkurri gagnrýni fyrir að mæta ekki í pontu og svara spurningum þingsins. Nú liggja tölurnar fyrir á alþingisvefnum og er auðvelt að skoða en aðeins erfiðara að bera tölurnar saman við aðra þingmenn eða ráðherra. Ég ætla að reyna að bera saman tölur forsætisráðherra og annarra ráðherra sem hafa setið í ráðherrastól allt kjörtímabilið. Til hliðsjónar ætla ég líka að bera saman ræðutölur sömu einstaklinga þegar þeir voru í stjórnarandstöðu í tíð fyrri ríkisstjórnar.

Til að byrja með tek ég ræðutölur allra ráðherra og skoða hlutfall ræðutíma hvers og eins miðað við ræðutíma forsætisráðherra, ýmislegt áhugavert kemur í ljós við þann samanburð. Að meðaltali í tíð þessarar ríkisstjórnar þá hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir talað minnst þeirra ráðherra sem ég ber saman við forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson mest. Ragnheiður Elín hefur einungis talað tvo þriðju af ræðutíma forsætisráðherra en Bjarni hefur talað þrefalt lengur en Sigmundur. Bjarni hefur talað áberandi mest allra ráðherra en næstur kemur menntamálaráðherra með 23% lengri ræðutíma en forsætisráðherra.

Raunar er það svo að einungis Bjarni og Illugi hafa talað meira en forsætisráðherra, allir aðrir ráðherrar hafa talað minna.

BB IG SIJ EH GBS KÞJ REÁ
3,06 1,228 0,98 0,97 0,79 0,67 0,66

Störf ráðherra eru auðvitað jafn mismunandi og málaflokkarnir sem þeir bera ábyrgð á en það gerir samanburð milli þinga enn áhugaverðari. Að jafnaði talaði Bjarni tvisvar til þrisvar sinnum lengur en Sigmundur fyrir núverandi þing en á þessu þingi talaði Bjarni nær fimmfalt meira en Sigmundur. Sama á við Kristján Þór sem talaði að jafnaði mun minna en Sigmundur, á núverandi þingi hefur hann talað meira en forsætisráðherra.

hlutfallræðutími

Ræður ráðherra eftir þingum:

ræðutími

Til að byrja með er forsætisráðherra mjög virkur í umræðunni á Alþingi. Á öðru þingi kjörtímabilsins heldur hann í á við hina ráðherrana en á þriðja þinginu fer að sjá merki um minni þátttöku. Það sem af er þessu fjórða þingi kjörtímabilsins nær hverfur forsætisráðherra sem og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og iðnaðarráðherra. Ábyrgð Sigurðar Inga minnkaði þó töluvert þegar Sigrún tók við sem umhverfis- og auðlindaráðherra og gæti það skýrt minni þátttöku hans á Alþingi.

Kannski er þetta eðlileg dreifing. Forsætisráðherra að leggja línurnar í stefnuræðum í upphafi kjörtímabils og þegar líður á þá taka aðrir ráðherrar við í flutningi stefnumálanna sem liggja þá að lokum á ábyrgð þeirra. Maður myndi þó ætla það að að jafnaði væri nokkuð jafnt álag yfir allt kjörtímabilið á milli allra ráðherra. Einstaka ráðherra hefði kannski minna að gera á einu þingi en allir hinir eitt þingið (bara innan þings, ekki innan ráðuneytis auðvitað) en forsætisráðherra? Er ekki jafn mikið að gera í að upplýsa þingið um verkstjórn ríkisstjórnarinnar allt kjörtímabilið? Þó það sé einstakt mál, þá er beiðni Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um sérstakar umræður um afnám verðtryggingarinnar mjög lýsandi fyrir þessa breytingu á ræðutilhögun forsætisráðherra.

Er það annars bara ég eða lítur út fyrir að Bjarni sé forsætisráðherra þessarar ríkisstjórnar að öllu leyti nema á nafnspjaldinu?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283