Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gamla bíó býður á gamaldags barnaball – jólasveinarnir mæta!

$
0
0

Gamla bíó býður börnum og fjölskyldum þeirra á gamaldags barnaball sunnudaginn 20. desember kl. 14.00. Þar mun barnakór Vatnsendaskóla leiða söng og dans í kringum jólatréð og veitingar verða í boði Ölgerðarinnar.

Jólasveinar hafa boðað komu sína og munu vonandi rata á réttan stað, en þeir eru búnir að vera að æfa sig í að taka selfí og ætla að stilla sér upp með þeim börnum, og fullorðnum börnum, sem vilja vera á mynd með þeim.

10869759_758882420815855_4925683470031009943_o

Allt er þetta í boði Gamla bíó og eru allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Facebook viðburðurinn er auglýstur hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283