Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hátíðarvínin 2015 – Hér eru nokkrar góðar tillögur!

$
0
0

Það er ekki heiglum hent að velja réttu vínin fyrir hátíðarmatinn og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Hér eftir ætlum við að fjalla um nokkur flott hátíðarvín og para saman með mat eftir okkar bestu getu.

unnamed (1)

Smáréttir/fingramatur

Hér dugar bara gott þurrt freyðivín og við mælum með nýju cava freyðivíni frá Spáni, Villa Conchi Brut Seleccion kr. 1.990. Vínið hefur fengið feykilega góðar viðtökur undanfarið og fékk m.a. 4 stjörnur af 5 bæði hjá Steingrími á vinotek.is og Þorra Hrings og báðir enduðu umfjöllun sína á sömu orðum „Verð kr. 1.990.- Frábær kaup.“ Þetta flotta freyðivín hefur ennfremur fengið fjölda verðlauna erlendis.

unnamed

Reyktur eða grafinn lax

Hér á gott hvítvín vel við og um að gera að leita aðeins út fyrir rammann. Við mælum með 2 flottum hvítvínum, annað frá Spáni og hitt frá Ítalíu:

Val di Vid Verdejo kr. 2.190 er tiltölulega nýtt í Vínbúðunum og kemur frá Rueda sem er vínhérað í norðvesturhluta Spánar. Þrúgan er eins og fram kemur Verdejo og er ekki ólík sauvignon blanc þrúgunni. Þetta vín fékk líka 4 stjörnur af 5 hjá Steingrími og hann taldi vínið frábær kaup. Hitt vínið er einnig nýtt í Vínbúðunum og kemur frá einum fremsta vínframleiðanda á norður Ítalíu, Tenuta San Leonardo.

Vette di San Leonardo kr. 2.690 fékk 4,5 stjörnur hjá Steingrími og frábær kaup stimpilinn. Vínið er gert úr sauvignon blanc og er er einfaldlega alveg ótrúlega gott.

Screen Shot 2015-12-23 at 01.02.41

Humarréttir

unnamed (2)

Humar er nú ekki alveg gefins og eins gott að vanda vel til þegar velja þarf vín með honum. Hér á hvítvín að sjálfsögðu við og ansi margar tegundir sem koma upp í hugann. Við ætlum að mæla með 3 hvítvínum með humrinum, tvö frá Spáni og eitt frá Chile:

Cono Sur Organic Sauvignon Blanc kr. 2.190. Cono Sur vínframleiðandinn frá Chile er ein af okkar uppáhalds víngerðum. Það er í raun sama hvað vín maður velur frá þeim, þú gengur að gæðunum vísum og á alveg ótrúlega verði. Þessi víngerð er vistvæn og þetta vín er lífrænt en það eru æ fleiri sem óska eftir lífrænum vínum. Þetta vín er afar vel gert og fékk m.a. 3,5 stjörnur hjá Þorra Hrings og hann taldið þetta vera frábær kaup.

Altos R Blanco kr. 2.150. Það er víst óhætt að segja að spænsku vínin frá Altos hafi komið með hvelli inn í líf landsmanna og Altos Crianza rýkur út í Vínbúðunum. Það er enda frábær verð á þessum vínum. Þetta vín er sett saman úr þrúgunum Viura og Malvasia og hluti þess er gerjaður og þroskaður í 4 mánuði í rosknum eikartunnum frá Frakklandi og Bandaríkjunum en hinn hlutinn við lágan hita í stáltönkum. Fékk 4 stjörnur hjá Þorra Hrings sem er frábær dómur fyrir ekki dýrara vín.

Pago de Cirsus Chardonnay kr. 2.249. Það verður að segjast eins og er að þessi víngerð er nýi besti vinur okkar og vínin frá þeim eru öldungis frábær. 4,5 störnur hjá Steingrími og 4 hjá Þorra sem sagði um vínið „ Verðið, einsog á rauða víninu, er bara útí hött.“ Vínið kemur frá Navarra og er algjört möst að prófa!

Screen Shot 2015-12-23 at 01.04.54

Hamborgarhryggur og hangikjöt

unnamed (4)

Það sýnist sitt hverjum hvað á að drekka með reykta hamborgarhryggnum og margir kjósa bara að fara í malt og appelsín. Æ fleiri kjósa hins vegar að fara í hvítvín með hryggnum og hvítvínin frá Alsace passa reyndar afar vel með honum. Hér leggjum við til 2 flott hvítvín frá Alsace og síðan góðan pinot noir frá Chile:

Pfaff Pinot Gris kr. 2.590. Hvítvínin frá Pfaff hafa lengi verið þau vinsælustu af Alsace vínum á Íslandi og ekki af ástæðulausu. Fékk 4 stjörnur bæði hjá Þorra og Steingrími og 89 punkta hjá Wine Enthusiast. Vínið ber angan af blómum og sultuðum ávöxtum og er bæði frískandi og lymskulega höfugt. Liturinn er aðlaðandi gylltur eða gulleitur. Það er tignarlegt í nefi með reyktum keim af sýruríkum gulum ávöxtum. Slíkur ferskleiki býður upp á óviðjafnanlega skerpu og fágun. Í munni finnur maður perur, gular plómur og bökuð epli sem veita góðri fitu fullkomið mótvægi. Eiginleikar þessir gera vínið framúrskarandi gott með mat.

Pfaff Gewurztraminer kr. 2.590. Gewurztraminer þrúgan hentar einnig vel með hamborgarhryggnum. Gewurz þýðir krydd en það einkennir einmitt þetta vín. Múskat og hvítur pipar er einkennandi ásamt rósum og hunangi. Silkimjúkt á tungu.

Cono Sur Pinot Noir Reserva kr. 2.465. Pinot noir þrúgan er sæt í bragði og hentar vel með fuglakjöti eins og önd en hentar einnig vel með hamborgarhrygg.

Screen Shot 2015-12-23 at 01.11.00

Villibráð og létt villibráð

unnamed (5)

Hér þarf verulega að vanda til verks þegar ákveða þarf vín. Villibráð er ansi mismunandi allt frá léttri villibráð eins og önd upp í þungar hreindýrasteikur.

Terre di San Leonardo kr. 2.890. 4,5 stjörnur af fimm hjá Þorra Hrings og látum hann hafa orðið:

„Það hefur þéttan plómurauðan lit og afar Bordeaux-legan ilm af sólberjum, bláberjum, plómu, grænni papriku, kremaðri eik, leðri, vanillu, jörð og stálvaski. Í munni er það meðalbragðmikið, þurrt, fágað, þétt og með mjög sannfærandi jafnvægi, mjúk og mikil tannín og fína sýru. Það inniheldur glefsur einsog dökk og rauð ber, kaffi, venillu, súkkulaði og papriku. Dálítið einsog „Annað Vín“ frá þriðja yrki í Médoc. Hafið með fáguðum og flottum mat, rauðu kjöti, harðari ostum og villibráð. Afar ljúffengt og matarvænt vín. Verð kr. 2.890.- Frábær kaup.“

Alvaro Palacios La Montesa Crianza kr. 3.190. Við getum bara ekki hætt að lofa vínin frá þessum víngerðamanni ársins í Decanter, þetta er frá Rioja. 4,5 stjörnur í síðasta Gestgjafa, 4,5 stjörnur hjá Steingrími og 4,5 stjörnur hjá Þorra Hrings. Svo mörgu voru þau orð en hér er lýsing Steingríms:

„Ólíkt flestum Rioja-vínum er La Montesa ekki Tempranillo-vín heldur er það Garnacha-þrúgan (Grenache) sem er 80% af blöndunni. 2012 var mjög heitt og þurrt ár og það endurspeglast í víninu, ávöxturinn er dökkur, þroskaður, kirsuber, plómur í bland við smá dökkt súkkulaði, reykur og töluvert kryddað. Það hefur þétta og fína uppbyggingu, góð, kröftug tannín, mikil, sæt vanilla í munni, mjúkt og þægilegt. Verð kr. 3.190.- Frábær kaup.“

Altos R Reserva kr. 3.750. Eitt af afar fáum vínum sem hafa fengið 5 stjörnur af 5 hjá Þorra Hrings, öldungis frábært vín. Gefum Þorra orðið:

„Í munni er það samþjappað og bragðmikið, þurrt, langvarandi og sýruríkt með vænan skammt af mjúkum tannínum. Á sama tíma er það í frábæru jafnvægi með fínlegan glæsileika og aristókratiska byggingu. Þarna eru dökk og rauð sultuðu ber, plóma, vanilla, þurrkaður appelsínubörkur, balsam, súkkulaðihúðuð kirsuber, steinefni og kókos. Vín sem endist í 3-10 ár í viðbót. Hafið þetta með einhverri góðri nautateik eða villibráð. Örugglega fínt með jólamatnum. Verð kr. 3.750.- Frábær kaup.“
Il Poggione Brunello di Montalcino kr. 7.890. Þetta frábæra vín lenti í 4. sæti á lista Winespectator yfir 100 bestu vínin á þessu ári og er því mikill hvalreki fyrir íslenskt vínáhugafólk. 2009 árgangurinn fékk 5 stjörnur af 5 mögulegum hjá Steingrími Sigurgeirs og 2010 árgangurinn fer að detta inn í Vínbúðirnar. Vínið fékk 95 í einkunn hjá Winespectator og 98 í einkunn hjá Wine Advocate. Franceschi fjölskyldan leggur allt sitt í þetta frábæra vín og geymir það á franskri eik í 3 ár áður en það fer á flöskur. Í nefi er allt að gerast, kirsuber, krydd, lakkrís, þurrkað kjöt, mulin rósarblöð og grillað kjöt. Ekkert yfirgnæfir annað og í munni er það afar þétt og endalausir ávextir lofa endalausum líftíma, svona næstum því. Það má í það minnsta geyma vínið í allt að 20 ár í kjallaranum hjá sér.

Af þessu víni er einungis til takmarkað magn og við getum prísað okkur sæla hér á Íslandi að það sé til slatti af því hér. Það er þó nokkuð ljóst að það mun klárast tiltölulega fljótt. Villibráðin hreinlega kallar á þetta vín.

Screen Shot 2015-12-23 at 01.14.09


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283