Áramót nálgast óðfluga og þá er um að gera að huga að því hvaða freyðivín eru til á markaðinum og í hverjum þeirra hægt er að gera góð kaup! Við skulum skoða nokkur glæsileg freyðivín en hér ættu allir að finna eitthvað sem hentar smekk og ráðahag!
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hér á landi hafa vínin frá Santero verið fádæma vinsæl og þá kannski sérstaklega Prosecco vínið sem hefur verið lang mest selda freyðivín á Íslandi um nokkurt skeið.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Santero Prosecco Craze
Prosecco er freyðandi vín frá Ítalíu sem er venjulega gert úr þrúgum sem heita Glera, en hafa líka verið kallaðar Prosecco. Þó nafnið sé dregið af bænum Prosecco nálægt Trieste, hvaðan þrúgurnar eru upprunnar, er DOC Prosecco framleitt bæði í Veneto og Friuli og í hlíðunum í kringum Treviso.
Þetta prosecco sem, eins og áður segir, er það langvinsælasta í vínbúðunum, er fallega strágult að lit með fínlegum „bubblum“. Í nefi býður það upp á fínlegan blómailm, sem er eitt af karaktereinkennum Prosecco, og ilm af ferskum ávexti. Bragðið er ávaxtaríkt og aðgengilegt með skemmtilegum ávaxtanótum. Frábært eitt og sér, með flugeldum, sem fordrykkur eða með nánast hvaða máltíð sem er. Berið fram við 5-6°C. Þetta vín er á mjög góðu verði í vínbúðunum, eða aðeins Kr. 1.899
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Santero Moscato
Við Íslendingar höfum lengi átt í gjöfulu ástarsambandi við örlítið sæt freyðivín frá Asti. Asti er svæði í Piemonte héraðinu í norður Ítalíu við rætur Alpanna. Þetta eru iðulega vín sem gerð eru úr hinni ilmríku þrúgu Moscato. Hér er vín sem er er einmitt úr þessari skemmtilegu þrúgu, sem er elsta þekkta þrúguafbrigðið frá þessu fallega svæði. Þessi vín eru iðulega frekar sæt og með lágt áfengisinnihald og hér er engin undantekning á því. Þetta er vín sem er ljósstrágult með dæmigerða angan af Mocato þrúgum, ávexti og appelsínublóm. Það er sætt í munni og arómatískt og gott jafnvægi. Það hentar afar vel með kökum og hverskonar eftirréttum og ávöxtum. Berið fram við 6-8°C
Þetta vín er á afar góðu verði á vínbúðunum eða aðeins Kr. 1.150
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Santero Moscato Fragola
Þetta vín er að mörgu leiti óvenjulegt en um leið skemmtilegt. Það er löng hefð fyrir því á Ítalíu að gera vín sem heita Fragola, þau eru yfirleitt gerð úr þrúgum sem henta alla jafna illa til víngerðar, af afbrigðinu vitis Lambrusca (Flestar þrúgugerðir sem notaðar eru í víngerð eru af afbrigðinu Vitis Vinifera) Þrúgur sem eru mjög bragðmiklar og vaxa hratt. Þetta vín er gert úr þesskonar þrúgum sem heita einmitt Uva Fragola (ísl: Jarðaberjaþrúgan) og vínið er gerjað upp í lagt áfengisinihald og úr verður frekar sætt vín sem síðan er bragðbætt með náttúrulegum villijarðaberjasafa svo úr verður þessi frábærlega frískandi drykkur. Í nefinu er ferskur ilmur af jarðaberjum og bragðið er jafn sprellfjörugt og svalandi. Frábært vín með ávöxtum, eftirréttum og góðum vinum. Þetta vín er á afar góðu verði á vínbúðunum eða aðeins Kr. 1.150.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Cava vín þykja mörgum hér á landi ómissandi við hátíðleg tækifæri og hér fæst eitt af þessum flottu cava vínum og það á frábæru verði!
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Villa Conchi Brut Seleccion kr. 1.990
Þrúgurnar í þetta vín eru tíndar að næturlagi til að forðast ótímabæra gerjun og fluttar með hraði í víngerðina og geymdar þar í 10° hita til að koma í veg fyrir að þrúgurnar liti vínið. Þar fer víngerðin svo í gegnum afar flókið kerfi í nýjustu græjum og útkoman er eftir því góð. Þegar búið er að setja vínið í flöskur fer seinni gerjun fram í þar til gerðum kjöllurum í 15-17° hita. Þessar flöskur eru svo geymdar að minnsta kosti í 12 mánuði við þessar aðstæður. Og útkoman, ójá… Látum vínsérfæðinginn Steingrím Sigurgeirsson á vinotek.is lýsa víninu:
„Spænsku Cava-freyðivínin geta verið ansi hreint góð, ekki síst frá minni framleiðendum sem að leggja mikið í framleiðsluna. Villa Conchi er eitt af þessum vínum, blanda úr Xarello, Macabeo, Parellada og Chardonnay. Vínið er gert með kampavínsaðferðinni, það hefur þokka og bara töluverðan elegans. Tært, með ferskri hreinni ávaxtaangan, sítrus, smá brioche, smá möndlur, ferskt og stílhreint í munni, með þægilegri sýru. Verulega gott cava. 1.990 krónur. Frábær kaup.“
Í september 2015 var Ferrari valinn „Sparkling wine Producer of the Year“ í hinni frægu keppni „The Champagne and Sparkling Wine World Championships.“ Það má því með sanni segja að Ferrari beri höfuð og herðar yfir aðra freyðivínsframleiðendur.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Draumur verður að veruleika
Um aldamótin 1900 ól Giulio Ferrari með sér þann draum að gera freyðivín í Trento héraðinu á Ítalíu sem stæðu jafnfætis kampavínum að gæðum. Hann sá möguleika svæðisins til að gera góð þurr freyðivín og var fyrsti víngerðarmaðurinn sem plantaði töluverðu magni af Chardonnay vínvið í Trento.
Í dag er það þriðja kynslóðin sem heldur um stjórnartaumana, þau Marcello, Matteo, Camilla og Alessandro. Markmið þeirra er einfalt: að kynna Ferrari um allan heim sem glæsilegan fulltrúa fyrir ítölsku listina að lifa. Ferrari freyðivín eru nú eftirsótt um allan heim og borin fram í fínustu veislum. Það er fagnaðarefni að í Vínbúðunum fæst ein tegund af Ferrari og þó það sé ekki ódýrt miðað við freyðivín er það samt næstum helmingi ódýrara en kampavín í sama gæðaflokki.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Ferrari Maximum Brut kr. 4.639
Sú staðreynd að Steingrímur Sigurgeirsson hafi valið þetta vín sem besta vín ársins 2010 segir kannski sína sögu. Þetta freyðivín, sem gert er 100% úr Chardonnay þrúgum, er bara unaðslegt og í nefi má finna epli, smá tóna af kexi og sítrónu. Þroskaðir ávextir og stökkt brauð koma upp á yfirborðið en það má örugglega rekja til þess að vínið er látið eldast í a.m.k. 3 ár með gerinu. Ferskt og líflegt í munni með alveg unaðslegum og fínlegum „bubblum“, dæmigerðir ávaxtatónar frá Chardonnayinu og örlítill keimur af geri. Þetta hlýtur að vera freyðivínið um jólin og áramótin!