Völva Kvennablaðsins veit allt og treystir sér til að segja nokkuð nákvæmlega fyrir um helstu atburði komandi árs. Á þessum nýjustu og óvenjulegustu tímum spáir hún stórgóðu ári fyrir Vonda fólkið, fremur hörðu ári fyrir þá sem ekki telja sig til þeirra og beinlínis hallæri fyrir hið svokallaða „Góða fólk“.
2016 hefur summuna níu og talan níu ber með sér von svo lengi sem örlagavefurinn snýr að sólu. Jákvæð niðurstaða tölunnar níu er hjálpsemi, virðuleiki, heimsmennska, mannúð, örlæti, rómantík, samvinna, sköpunarkraftur, stolt og fórnfýsi. Neikvæða niðurstaðan er: egóismi/sjálfsmiðun, hroki, sjálfsvorkunn, viðkvæmni, andlegt ójafnvægi, hvikulleiki, óánægja, ónákvæmni.
Árið verður að mestu 2016b.
Ótti við allt sem er framandi og frumlegt verður allsráðandi og munu landsmenn þjappa sér saman um allt sem er gamalt og fyrirsjáanlegt. Alda afturhalds og þröngsýni flæðir yfir Vesturlönd. Heimskan mun þrífast sem aldrei fyrr og 2016 verður árið þegar þjóðir ráðast gegn öðrum þjóðum af hörku sem einkennir þau tímabil mannkynssögunnar sem allir hugsandi menn óttast að endurtaki sig.
2016 er ár óstöðugleika, fólksflutninga, óvissu, ískyggilegra veðrabreytinga og vaxandi ringulreiðar.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hafstraumurinn El Niño veldur usla sem aldrei fyrr og veðurfarsbreytingar hafa umtalsverð áhrif um allan heim. 2015 var heitasta árið síðan mælingar hófust og 2016 verður ennþá heitara. Í ljós mun koma að loftslagsráðstefnan í París var sýndarmennskan ein og ákvarðanir sem þar voru teknar munu engu skila nema grafalvarlegum afleiðingum fyrir smáeyþjóðir sem lítils mega sín. Heilbrigðisvandamál Kínverja og Indverja af völdum mengunar munu orsaka ótímabær dauðsföll heilu kynslóðanna sem nú vaxa úr grasi. Matvæli framleidd í Kína verða æ oftar dæmd óhæf til manneldis.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Í upplausnarástandi leynist engu að síður ógnarkraftur og munu margar uppgötvanir á sviði vísinda líta dagsins ljós á nýju ári. Vísindaheimurinn stendur á hugmynda- og hugmyndafræðilegum tímamótum og 2016 verður ár stórkostlegra framfara. Á sama tíma verður gerð sífellt háværari krafa um að vísindamenn geri upp við sig hvort þeir gangast fræðum eða fjármagni á hönd. Völva býst við að þessi spurning leiti af mestum krafti á sérfræðinga í læknisfræði og ýmsum greinum félagsvísinda.
Pólitíkin í landinu
Fylking Pírata riðlast mjög á árinu og fylgi þeirra dalar eftir því sem á líður. Til að þétta raðirnar og verjast árásum trölla verður hverju spjallsvæðinu á fætur öðru lokað og þegar þingmaður flokksins tekur að svara í sífellu með ummælunum „þú ert ekki Pírati“ verða deilur Pírata að krísu. Sami atgervisflótti og aðrir flokkar hafa þurft að þola mun laska Pírata, sem ekki eru leikskólaflokkur lengur. Þeir eru í meirihluta í Reykjavík, með þrjá þingmenn og hafa mælst stærsti flokkur landsins mánuðum saman.
Pírötum hefur þó ekki tekist að marka sér stefnu sem stólandi væri á og verða litlar framfarir í þessum efnum 2016. Píratakóðinn verður teygður fram og til baka sem fjarvistarsönnun fyrir flokkinn í þeim átökum sem mestu skipta í íslenskri pólitík: efnahagsmálum og menningarpólitík. Frjálslynt aðgerðarleysi verður höfuðeinkenni Pírata næsta árið og munu gárungar velja uppnefnið „Nýlatir“ eftir að Björt framtíð leggur upp laupana fyrir sumarfrí. Fyrir árslok mun fylgið hrynja af Pírötum og hefðbundnir valdaflokkar hagnast, einkum Sjálfstæðisflokkurinn.
Uppstokkun verður í þingflokki Samfylkingar í kjölfar heiftúðugra deilna og hverfur að minnsta kosti einn sitjandi þingmaður úr flokknum á árinu. Forysta flokksins þéttir raðirnar og helgar sig því verkefni að halda fylginu yfir 5% í könnunum. Helsta markmið flokksins verður sem fyrr að forðast kosningar og ýmist heiðra minningu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur eða sverta með öllum tiltækum ráðum. Formaður flokksins mun sitja sem fastast þrátt fyrir áframhaldandi fylgishrun og neita að horfast í augu við að „samtal“ um ágæti Ingibjargar Sólrúnar er ekki sérlega áhugavert erindi fyrir stjórnmálaflokk. Í árslok mun ríkja algjör upplausn í flokknum en þá verður of seint að stofna nýjan flokk jafnaðarmanna eða skipta um forystu.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs mun sækja í sig veðrið á árinu og njóta vaxandi stuðnings þrátt fyrir að vera ekki að gera neitt af sýnilegu viti. Framsóknarflokkurinn mun fagna 100 ára afmæli sínu með veglegum hætti um land allt á kostnað skattgreiðenda. Hafist verður handa við ritun sögu flokksins í a.m.k. 3 bindum og verða Eggert og Jóhannes Skúlasynir ráðnir til að veita ráðgjöf um ritstjórn verksins. Fjöldi fyrirspurna vegna þessa máls veldur óvæntri eftirspurn í mötuneyti Alþingis.
Clik here to view.

Sigrún Magnúsdóttir.
Verulegar breytingar verða á ráherraliði ríkisstjórnarinnar. Vigdís Hauksdóttir tekur við af Sigrúnu Magnúsdóttur, sem færir sig í sérverkefni á sviði menningarminja og verður yfirritstjóri, sýningarstjóri og framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins.
Gunnar Bragi Sveinsson verður forstjóri Áburðarverksmiðju ríkisins og tekur Ásmundur Einar Daðason sæti í ríkisstjórn sem ráðherra atvinnu- og landbúnaðar. Hanna Birna Kristjánsdóttir verður utanríkisráðherra og framsóknarmaður sem ekki einu sinni Völva Kvennablaðsins man hvað heitir verður forseti Alþingis. Allt verður þetta til lítils gagns en mikilla vinsælda.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Illugi Gunnarsson flyst búferlum til Kína þar sem hann mun sinna sérverkefnum. Verðlagning raðhúss hans á AirBnB verður háðfuglum að nokkurri skemmtan á vormánuðum.
Eins og flest önnur ár verður 2016 auðvelt ár fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Fjölmiðlar munu nálgast flokkinn af frábærri auðmýkt og þrátt fyrir að efsta lag flokksins sé gegnsýrt af spillingu og kunnáttuleysi verður kastljósið sem fyrr á vanda VG, Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Pírata og femínista.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Árið 2016 verður langtífrá árið sem Bjarni Benediktsson þarf að biðjast afsökunar á Vafningi, Borgun, Svissneska bankakortinu sínu, partístandi, gjaldþrotum, Dubai, Florida, Twitterflippi eða Icehot1 reikningi eiginkonunnar.
Ráðherrar flokksins munu halda áfram að dreifa ríkisfé og ívilnunum til fjölskyldu og vina, einkavæða og rústa heilbrigðiskerfið, tala fyrir vægð og mannúð en lyfta ekki fingri til að hjálpa nokkurri sál, stuðla að mannréttindabrotum og vinda markvisst ofan af vandaðri stjórnsýslu. Nýr menntamálaráðherra verður vandræðalega treglæs og hlýst af því nokkurt grín meðal hrokafulls menntafólks. Fylgi flokksins verður tæp 40% í árslok og allar horfur á að stjórnin haldi velli.
Forsætisráðherra mun verja árinu í grúsk og snudd af ýmsu tagi. Lausn á fjárhagsvanda Fangelsismálastofnunar með endurupptöku tugthústolls mun valda almenningi nokkrum búsifjum en stórauka fylgi flokksins. Starfsmaður stjórnarráðsins lekur skissum af fyrirhuguðum styttum af Sigmundi Davíð og verður ræstingaþjónusta stjórnarráðsins þvinguð til að gera samning við nýja starfsmannaleigu í kjölfarið.
Lekinn verður rakinn til einstæðrar móður frá Litháen og henni vísað úr landi en launum hennar haldið eftir ásamt ýmsu smálegu sem finnst við leit í herbergi hennar í atvinnuhúsnæði í Kópavogi.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Netárás á netþjón Ríkislögreglustjóraembættisins leiðir í ljós að afrit allra tölvupósta sem fer um íslenska netþjóna er vistaður þar vegna þjóðaröryggis. Þeir sem kynnu að vilja mótmæla hafa allir eitthvað að fela og kjósa að beina athygli sinni annað.
Fjöldi sveitarfélaga mun taka upp morgunbænir í grunnskólum og átak Þjóðkirkjunnar á samfélagsmiðlum undir meistaralegri stjórn Bigga löggu (#bigijesus) leiðir til fjölgunar í kirkjunni í fyrsta sinn í áratug.
Clik here to view.

#Bigijesus
Matvælastofnun verður flutt á Kópasker og upprunamerkingar matvæla alfarið bannaðar, þó skylt verði að setja íslenska fánann á allar unnar kjötvörur, niðursuðuvörur og sælgæti. Stjórnarskrárnefnd verður aflögð með dillandi hlátrasköllum í þingsal. Allar framkvæmdir vegna nýs Landspítala verða stöðvaðar og afráðið að hefja undirbúning frá grunni með hliðsjón af tillögu Guðjóns Samúelssonar að berklahæli við Elliðavog. Neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verður lengd og breikkuð og framkvæmdir hafnar við bætta aðstöðu fyrir einkaþotur.
Clik here to view.

Essasú?
Ólafur Ragnar Grímsson mun ekki gefa kost á sér í embætti forseta Íslands, þótt þorri almennings búist við því og sætti sig við það eins og önnur hundsbit. Stjórnmálafræðingar munu þó verja fyrstu viku nýars hið minnsta í að túlka þvælda og illskiljanlega nýársræðu forseta lýðveldisins. Eftir undarlega kosningabaráttu mun Þorgrímur Þráinsson lúta í lægra haldi þrátt fyrir myndarlegan kipp á lokasprettinum eftir að hann rotar Sturlu Jónsson í beinni útsendingu hjá Gísla Marteini. Nýr forseti Íslands verður dökkhærð ung kona.
Í apríl eða maí mun sýrlenskur múrari ganga berserksgang á Götubarnum á Akureyri, bugaður af áfallastreitu, blankheitum og því hvað það er svakalega leiðinlegt að búa á Akureyri. Eftir að hafa æpt eitthvað óskiljanlegt um Nínu sína slær hann framtennur úr bæjarfulltrúa og brýtur gítar á höfði trúbadúrs. Atvikið leiðir til þess að allri aðstoð við flóttamenn verður hætt og rammt hatur á útlendingum sem eiga ekki mjög mikla peninga verður leitt í landslög við mikinn fögnuð.
Af efnahagsmálum verður það helst að segja að að samningar losna fljótlega á árinu við öll helstu verkalýðsfélög sem fara í enn eina hrútleiðinlega verkfallshrinu og fá talsverðar launahækkanir. Markmiði stjórnvalda um aukningu ójafnaðar verður náð fyrr en nokkur þorði að vona. Verðbólga í árslok verður komin í um 15% en vegna flutnings Hagstofunnar á Skagaströnd fréttist ekki af því fyrr en eftir kosningar. Næstu ríkisstjórn verður kennt um öll hagstjórnarslys kjörtímabilsins og tapar hún kosningunum fyrirfram.
„Helvítis fávitar“ vs. „Djöfulsins fífl“
Þess herrans árs 2015 verður lengi minnst sem árs hins skringilega og 2016 verður verulegur eftirbátur hvað þetta snertir. Nokkur atvik eru Völvu þó í allsfersku minni fyrirfram.
Þannig verður mannbjörg í alvarlegum en allsérstæðum skipskaða í Vaðlaheiðargöngum og skriðuföll vegna framkvæmda við snjóflóðavarnargarða á Eskifirði vekja nokkra kátínu. Sérmerkt grjóthleðsla verður eldi að bráð á geymslusvæði og út kvisast að hárlús herji á þingheim á haustdögum.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu lendir í 4. sæti á EM, sem sannfærir þjóðina endanlega um yfirburði sína yfir allt annað fólk og öll dýr, grös og aðrar verur á jörðinni. Auglýsing frá Bakarameistaranum rýfur útsendingu frá vandræðalegu atviki þar sem fyrrverandi forseti og forsætisráðherra lýðveldisins freista þess að fara samtímis í sleik við fyrirliða landsliðsins.
Öll framlög til menningar og lista verða sameinuð í séríslenskum menningarsjóði sem hefur höfuðstöðvar í geigvænlega dýru leiguhúsnæði á Akureyri. Umsækjendum verður bent á að hafa í heiðri íslensk gildi og gert ljóst að sjóðurinn mun ekki styrkja bækur, leikverk, málverk, gjörninga eða kvikmyndir sem reykt er í og hafna allri tónlist sem er bara óskiljanlegur hávaði. Óheimilt verður að fjalla um kynlíf eða kynfæri nema í bundnu máli.
Gömul íslensk mannanöfn og nöfn úr Íslandssögunum munu njóta mikillar hylli á árinu. Vinsælustu barnanöfnin verða Auðlaug og Trandill.
Klofningur verður á samfélagsmiðlum á árinu, í „helvítis fávita“ annars vegar og „djöfulsins fífl“ hins vegar. Þessar stríðandi fyllkingar munu halda deilum sínum áfram mestallt árið en sameinast í haust undir grunnfána „andskotans femín(as)ista“.
Olíuverð mun halda áfram að lækka með alvarlegum afleiðingum fyrir Miðausturlönd en litlum sem engum áhrifum á afkomu íslenskra heimila.
Hekla, Katla eða Askja gjósa á árinu og auka straum ferðamanna enn frekar.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Bestu fréttir ársins verða þó af Landspítalanum, því í ljós kemur að myglusveppurinn sem þar herjar inniheldur efni sem vinna á ónæmum bakteríustofnum og mun slíkum sýkingum verða nánast útrýmt á næsta ári. Sveppurinn verður ræktaður áfram í húsnæði Landspítalans og virka efnið markaðssett á heimsvísu. Fyrir ágóðann verður reist nýtt hátæknisjúkrahús í öllum kjördæmum landsins nema Reykjavík.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Nekt verður föt ársins í listalífinu
Nekt, innyfli og röntgenmyndir verða uppistaða í listsköpun árið 2016 og munu listamenn í æ ríkari mæli nota líkama sinn og líkamsvessa til listsköpunar. Listaárið 2016 er leitin að kjarnanum en slímugt eða útgubbað hismi einnig áberandi.
Þjóðleikhús undir stjórn Ara Matthíassonar blómstrar sem aldrei fyrr og menn minnast gullaldarára Sefáns Baldurssonar í því samhengi. Hver stórsýningin á fætur annarri fellur áhorfendum í geð. Leikhúslíf borgarinnar blómstrar sem aldrei fyrr og mun Borgarleikhús standa fyrir söngleikjasýningum á ensku fyrir ferðamenn næsta sumar. Mun menningarelítunni þykja lágt lagst en leikhúsið verður fullt út úr dyrum enda ferðamenn aldrei fleiri en í ár.
Ferðasóðar sækja landið heim
Ferðamenn ársins 2016 mun halda áfram að sækja landið heim af miklum áhuga en dularfullri sparsemi. Drykkfelldur hagfræðingur verður sviptur stöðu við menntastofnun fyrir að benda á að með þessu áframhaldi verði ríkissjóður gjaldþrota árið 2021 vegna endurgreiðslna á virðisaukaskatti til ferðaþjónustu sem skilar bókstaflega engum sýnilegum tekjum en gríðarlegum kostnaði. Uppþot verða í júnílok þegar Seðlabanki Íslands neitar að taka lengur við krumpuðum fimmþúsundköllum. Kátínu vekur þegar ríkisskattstjóri óskar eftir íbúðaskiptum á Facebook.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Ferðamenn munu vinna áframhaldandi spjöll á náttúru vorri enda verður ferðaþjónustunni ekki sinnt nema að því leyti sem snýr að Guði. Falleg fortó og sölubásar munu rísa en engin uppbygging á göngustígum eða merkingum til að halda fólki í skefjum og á lífi. Fleiri ferðamenn slasast og láta lífið af orsökum sem má rekja til kunnáttuleysis í bókstaflega öllu sem flokkast undir gestamóttöku og gestrisni. Tillaga að sérstökum fyrirframsektum á útlendinga fyrir almennan klaufaskap og ótímabær þvaglát sofnar í nefnd.
Erlendar ferðaskrifstofur með áratugareynslu munu sölsa undir sig Íslandsæðið og mun margur landinn sitja eftir með sárt ennið og útrunna Klausturbleikju þegar bandarískar og breskar ferðaskrifstofur hafa vinninginn í skipulögðum ferðum til Íslands.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Íslenski snúðurinn verður sigurvegari ársins í markaðsetningu landans á innlendum gæðum og ‘The Snooth’ verður í fyrsta sinn heitari en lundi. Snooth-sjoppur rísa í hverju krummaskuði.
Fjölmiðlar
Vandi Stöðvar 2 eykst á nýju ári með dularfullum áherslum nýs dagskrárstjóra. Áskriftum fækkar enda línulegt sjónvarp í dauðateygjunum.
Eyþór Arnalds verður útvarpsstjóri og brennur ‘inn-an’ í sér.
10 þátta samframleiðsla Forsætisráðuneytis og RÚV á óperu Gunnars Þórðarssonar verður sýnd hægt á öllum rásum RÚV á meðan EM í knattspyrnu fer fram.
Vísir heldur velli.
Stundin vex og dafnar.
Kjarninn verður þurrari með hverjum deginum sem líður og munu andlitsmyndir pistlahöfunda stækka í samræmi við æ yfirlætislegri skrif sem að lokum enginn nennir að lesa.
DV heldur áfram að flytja furðufréttir utan úr heimi sem hafa þann tilgang einan að vera villuljós frá umræðu um það sem skiptir máli.
Mogginn myglar endanlega á árinu og hlýtur í árslok viðurkenningu félagsmálaráðherra sem verndaður vinnustaður þeirra sem nenna að skrifa um Hæðir í Hlíðunum og þarmalyf.
Kvennablaðið fer í hundana.
Hringbraut setur í loftið fyrsta sjónvarpsþáttinn ætlaðan nýbúum. Pólsk kona sem þættinum stýrir slær í gegn.
Fréttatími Gunnars Smára verður leiðandi á fjölmiðlamarkaði þegar á fyrsta ársfjórðungi og munu margir smærri fjölmiðlar falla undir veldi hans, fyrst Nútíminn og fleiri miðlar í kjölfarið.
Hitt og þetta
Fólkið í landinu mun knýja fram leyfi til að heimaskóla börn sín enda menntakerfið að liðast í sundur á ógnarhraða undir stjórn Kínafarans Illuga.
Íslendingar munu komast í heimpressuna fyrir að hafa tekist að rótfesta fátækt hjá barnafjölskyldum, gömlu fólki og öryrkjum þrátt fyrir ótrúlega smæð og ríkidæmi. Heimspressan mun grandskoða frænda- og frænkueinkavæðingu landsins og mun fylgja þessu eftir með ítarlegri umfjöllun um skammtímahugsun okkar varðandi náttúruauðlindir og fáfræði innfæddra um mikilvægi þessara dýrgripa.
Skammaryrðið Icenecks verður notað um íslenska stjórnmálamenn um allar trissur. Richard Branson kemur til landsins og er boðið í kokkteilboð í Höfða en neitar að tala við nokkra aðra en Björk og Andra Snæ.
Endurtekin læknamisstök og misbrestir í heibrigðiskerfinu setja stjórnvöld í verulegan bobba og almenning í stórhættu og munu háttsettir embættismenn flykkjast í aðerðir og viðhald á erlend sjúkrahús af ótta við smithættu og klaufaleg mistök.
Brynjar Níelsson fær óstöðvandi hláturskast sem stendur vel á aðra viku snemma í febrúar.
Ríó Tríó verður með kombakk með lagið „Skítt’í píkuna á þér“.
Clik here to view.

Myndskreyting Kristján Frímann Kristjánsson.
Í framtíðarbláma siglir Ólafur Ragnar einn á ísjaka til norðurslóða þar sem hann tekur sæti sem leiðtogi og foringi í opnun siglingaleiða og munu hann og Dorrit eiga unaðslega nótt saman í musterinu Taj Mahal umvafin demöntum fjölskyldu Dorritar, indversku naanbrauði og aldinmauki úr krydduðu mangói.
Lifum heil!