Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Svona tekurðu Veganúar með trompi!

$
0
0

Þátttakendur í VEGANÚAR 2016 eru svo sannarlega ekki einir á báti því hægt er að byrja mánuðinn á skemmtilegu fræðsluerindi þar sem farið verður yfir galdurinn á bak við þægilegt og ljúffengt vegan líf :) Viðburðurinn er á Sólon, mánudaginn 4. janúar 2016 klukkan 19:00.

Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir, upplýsingafulltrúi Samtaka grænmetisæta á Íslandi og konan á bak við Hugmyndir að hollustu fer yfir helstu atriði og gefinn verður góður tími fyrir spurningar. Fleiri vegan reynsluboltar verða einnig á staðnum og veita góð ráð.

Allir þátttakendur fá upplýsingapakka með hugmyndum að máltíðum, ábendingum að skyndibita, uppskriftum að góðgæti og yfirliti yfir það helsta sem er gott að hafa í huga.

Aðgangur er ókeypis en vinsamlegast skráið þátttöku  á viðburðarsíðunni svo hægt sé að hafa efni tilbúið fyrir alla.

1964895_786268194834833_6990997827976617578_n


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283