Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

NóaKroppurinn – missti 40 kg á 12 mánuðum!

$
0
0

Gestir Hreyfingar ráku nýlega upp stór augu þegar geysilegu Nóakroppsfjalli hafði verið komið fyrir á miðjum gangi íþróttastöðvarinnar. Á fjallinu var miði með skilaboðum til einkaþjálfarans Jóns Odds Sigurðssonar þar sem einn viðskiptavina hans þakkaði fyrir sig en hún hefur misst yfir 40 kíló á síðastliðnum 12 mánuðum.

20151125_092445

Kvennablaðið hafði samband við Jón Odd og forvitnaðist um hver þessi lauflétti húmoristi og dugnaðarforkur væri.

12512067_10153910114709312_1392713049_n

„Nóakroppurinn heitir Heiða Björk Gunnarsdóttir og hefur verið í Hreyfingu í nokkur ár,“ segir Jón og brosir ánægður með grínið og árangurinn hjá Heiðu. Heiða hefur staðið sig svo vel að hún er í raun ein besta talskona árangursins sem hægt er að ná með góðri leiðsögn og miklum metnaði. Því fór svo að Heiða prýðir í dag auglýsingar fyrir janúarnámskeið Hreyfingar með björtu brosi sem fyllir innblæstri hvern þann sem vill koma sér í betra form.

Heilsuáskorun  -12 vikna 2016

„Lykillinn á bak við árangurinn hennar er að hún fór réttu leiðina að lífsstílsbreytingum. Tók lítil skref í einu, fór eftir ráðleggingum frá mér í einu og öllu. Eins og hún orðar það, skipti um minniskubb. Rétt markmiðasetning, regluleg viðtöl (vikulega) og undirbúningur fyrir hverja viku var það sem hjálpaði henni mikið,“ segir Jón sem hefur þjálfað í Hreyfingu í nokkur ár.

„Heiða hefur verið misdugleg, en árið 2012 fór hún að taka þetta af alvöru en var ekki alveg að finna réttu leiðina. Í fyrra, akkúrat fyrir ári, kom hún til mín í einkaþjálfun og þá byrjuðu hlutirnir að gerast. Síðan þá hefur hún misst 40 kg. Hún hefur líka verið á námskeiði hjá mér samhliða einkaþjálfun og hef ég verið að passa að hafa rétt æfingarálag á henni alla daga, hún hefur meðal annars stundað jóga og næstum alla tíma í stöðinni.“

Screen Shot 2016-01-07 at 19.14.30

En hver er sagan á bak við súkkulaðifjallið? „Nóakroppið er krúttleg saga. Í fyrra, þá var ég að byrja að kenna tíma í Hreyfingu sem hún var í. Og ég fór að tala um innihald í Nóakroppi, meðal annars hitaeiningafjölda. Vegna þess að þessir nýju kassar voru að koma í verslanir, þ.e.a.s þessir 1 kg kassar. Einn svona kassi er 6000 kaloríur og er það um það bil 3 daga ráðlagður dagskammtur hjá „venjulegri“ konu.

Hún fékk vægt „áfall“ þegar hún heyrði þetta, sem og fleiri. Síðan var þessi „djókur“ með NóaKroppinn reglulega notaður á þessu námskeiði.“ Jón vill ekki gefa upp hvað hann hyggst gera við allt súkkulaðið en brosir og bætir við: „Það er nú það.“

Í dag æfir Heiða nánast alla daga og fyllir ekki aðeins meðpúlara sína metnaði heldur starfsfólk stöðvarinnar líka.

„Þetta er ótrúlega flott saga með þessa stelpu. Ég get ekki sagt þér hversu stoltur ég er af henni, hún á þetta svo mikið skilið,“ segir Jón Oddur og hvetur sem flesta til að koma sér af stað í ræktina. Þetta byrjar jú allt á einni æfingu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283