Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Tveggja daga heilsumatseðill frá Sollu

$
0
0
Solla á Gló deili hér tveggja daga matseðli sem hentar þeim sem vilja skipta um mataræði eftir hátíðirnar. Margar gagnlegar upplýsingar má finna á vef Sollu lifrænt.is:
Í upphafi árs langar marga að leggja áherslu á léttara fæði eftir hátíðarkræsingarnar, en það getur verið erfitt að skipta um gír og kveðja löngun í sætindi og veislumat. Þá finnst mér oft virka vel að skipta nógu snögglega um gír, og taka fyrstu dagana með trukki. Ég hef það sjálf fyrir hefð að taka tvo daga á léttu mataræði þar sem ég fæ mér grænmetisdjúsa, sjeika, salöt og súpur. Þannig næ ég að endurstilla bragðlaukana og hugarfarið og er tilbúin í hollu hversdagsrútínuna mína aftur.
Hér er hugmynd að tveggja daga matseðli, sem hefur virkað vel fyrir mig.
Njótið vel, kveðja Solla¨*•.¸¸☼

Dagur 1

– Gott að muna að drekka vatn og jurtate yfir daginn.
graenn-og-vaenn8

Grænn djús í upphafi dags
2 sellerístilkar
1/2 agúrka
1 msk sítrónusafi eða 1/2 afhýdd límóna
2-3 cm biti ferskt engifer
1-2 dl vatn
-Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka (fæst í Ljósinu, Langholtsvegi 43) eða nælonsokk. Líka hægt að nota safapressu, þá þarf ekki síupoka.

Morgunsjeik
2 dl möndlumjólk (1/2 dl möndlur + 2 dl vatn blandað saman og sigtað)
1 banani
2 dl frosin bláber
1 msk. grænt duft (t.d. þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein)
-Allt sett í blandara og blandað saman.

Hádegissalat
100g blandað kál
10 kirsuberjatómatar
1-2 vorlaukar eða smá graslaukur
1/2 avókadó, skorið í litla bita
50g spergilkál
1-2 gulrætur, skornar í bita
25g valhnetur, þurrristaðar
Marinering
Blandið saman:
1 msk sinnep
1 msk tamari-sósa
-Skolið og rífið/skerið kálið og setjið í skál, skerið kirsuberjatómatana í tvennt og setjið út í, sneiðið vorlaukinn í þunna skástrimla og bætið út í, skerið avókadó í bita og setjið saman við. Skerið spergilkál og gulrætur í passlega stóra bita og setjið í sér skál. Blandið maríneringuna og hellið yfir spergilkál og gulrætur og látið standa í 10-15 mínútur. Hellið spergilkálsblöndunni út í salatskálina og blandið öllu saman.

Millimálasnakk
Veldu eitt af eftirtöldu:
epli
agúrkubitar
gulrætur
mandarínurKvöldverður
Grænmetissúpa
1.2L vatn
1 rauðlaukur, smátt saxaður
1 msk kókosolía eða önnur olía
100g hvítkál
25g ferskur kóríander, smátt saxaður
1 tsk cumin duft
1/2 tsk kanill
Ofan á:
1 1/2 tsk kóríanderfræ
2 hvítlauksrif
-Skolið linsubaunirnar, setjið þær í pott með vatni og látið sjóða í um 25-35 mín. Mýkið laukinn á pönnu í olíunni í 3-4 mín, skerið hvítkálið í þunna strimla og setjið út á pönnuna með lauknum og látið mýkjast í 1-2 mín. Setjið hann síðan út í pottinn ásamt ferskum kóríander, cumin og kanil og látið malla í 5 min.

Hitið 3 msk olíu á pönnu, merjið saman kóríanderfræ og hvítlauk (t.d. í mortéli eða í hvítlaukspressu) og steikið í 1-2 mín í olíunni og hellið út á súpuna, hrærið í og berið fram.

nyars
Dagur 2

– Gott að muna að drekka vatn og jurtate yfir daginn.

Grænn djús í upphafi dags
2 sellerístilkar
1/2 agúrka
1 msk sítrónusafi eða 1/2 afhýdd límóna
2-3 cm biti ferskt engifer
1-2 dl vatn
-Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka (fæst í Ljósinu, Langholtsvegi 43) eða nælonsokk.

Morgunsjeik
1 hnefi spínat
2 msk goji-ber
1 msk grænt duft (t.d. þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein)
1/2 avókadó, skorið í bita
-Allt sett í blandara og blandað saman.

Hádegissalat
örlítið af tamari sósu
1/2 brokkólíhöfuð, skorið í lítil blóm
50g ferskt spínat eða stór hnefi grænt salat
1/2 agúrka, skorin í bita
50g möndlur eða heslihnetur
1 vorlaukur
nokkur kapersber, ef vill
Dressing:
2 msk ferskur appelsínusafi
hnefi af fersku kryddi, t.d. sítrónumelissu eða eitthvað annað gott sem er til
örlítið sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
timían
-Setjið brokkólíið út í sjóðandi vatn í um 1 mín eða hendið því aðeins a wok-pönnu með smávegis af tamari-sósu. Setjið spínat og klettasalat í skál og skerið agúrkuna í tvennt, skafið kjarnann innan úr henni með teskeið, skerið hana aftur í tvennt eftir endilöngu og síðan í um 5 cm langa bita og setjið út í salatskálina. Skerið vorlaukinn í þunnar sneiðar og setjið saman við salatið, ásamt kjúklingabaunum, hnetum, sólþurrkuðum tómötum, ólífum og kapersberjum. Hrærið saman ólífuolíu, sítrónusafa, appelsínusafa, ferskum kryddjurtum, timíani og örlitlu salti og pipar og hellið yfir salatið. Tilbúið!Millimálasnakk
Veldu eitt af eftirtöldu:
epli
agúrkubitar
gulrætur
mandarínur

Kvöldverður
Grænmetissúpa
1 rauð paprika, skorin í tvennt, steinhreinsuð og skorin í litla bita
1/2 agúrka, skorin í litla bita
1/2 kúrbítur, skorinn í litla bita
2 vorlaukar
2 msk steinselja
2 msk ferskur kóríander
1 hvítlauksrif
2 cm bútur engiferrót
1 msk sítrónusafi eða safi úr 1/2 límónu
1-2 dl vatn (eftir því hvað þið viljið hafa súpuna þykka)
1 tsk ljóst miso eða currypaste
smá salt eða tamari-sósa
-Byrjið á að setja papriku og agúrku og smá vatn í blandara, bætið síðan einni og einni tegund af hráefnislistanum í einu út í svo að auðvelt sé fyrir blandarann að mauka grænmetið. Blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283