Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Jóhann tilnefndur til Óskarsverðlauna öðru sinni!

$
0
0

Tónskáldið Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2016 fyrir tónlist sína en Óskarsakademían tilkynnti um tilnefnda nú fyrir stundu. Er þetta í annað sinn sem Jóhann hlýtur tilnefningu til verðlaunanna eftirsóttu. Að þessu sinni er það fyrir tónlistina í kvikmyndinni Sicario en Jóhann fékk einnig tilnefningu fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything árið 2014. Hér er svokölluð tónlistarstikla úr myndinni sem gaman er að hlusta á:

Ljósmynd USAtoday


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283