Þegar veldi Herlufs Clausen reis sem hæst og hann átti hálfan Laugaveginn voru eignir hans metnar á milljarð. Svavar Gestsson sagði að til þess þyrfti skipverji Ingólfs Arnarsonar að hafa lagt öll verkamannalaunin sín til hliðar í 1100 ár og verið í fríu fæði og húsnæði hjá móður sinni allan tímann. Á þeim tíma jafngilti milljarður dagvinnulaunum verkamanns í ellefuhundruð ár.
Tvöhundruð og fimmtíu milljarða gjaldþrot Sigurðar Einarssonar lítur svona út skrifað með tölustöfum.
250.000.000.000. Það eru semsagt 10 núll!
Hvað myndi það taka þig langan tíma að verða milljarðamæringur?
Ok, þú ætlar að safna einum milljarði 1,000,000,000 og hefur tök á því að leggja fyrir 10.000 krónur á dag. Þú setur þær bara undir koddann því bankakerfinu er ekki treystandi.
Það mun taka þig tæp 274 ár að safna milljarði (þetta miðast við enga vexti) og þrátt fyrir landlægt langlífi á Íslandi er ólíklegt að þú náir þeim aldri.
Það tekur 95,1 ár að telja upp í milljarð miðað við að það taki 3 sekúndur að segja hverja tölu. (Sem er mjög hratt talað þegar komið er upp í einhverjar upphæðir). Þetta miðast við linnulausan upplestur og enga hvíld.
Ljósmynd Vísir/GVA