Fréttatilkynning
Knut Storberget, þingmaður norska Verkamannaflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra Noregs, verður frummælandi á fundi Samfylkingar og Pírata, um betrunarmál, föstudaginn 29. janúar, kl. 13–15 í Norræna húsinu.
Norsk stjórnvöld fóru í gagngera endurskoðun á fangelsiskerfi sínu á árunum 2007–2008, í dómsmálaráðherratíð Knut Storberget og hefur betrunarkerfi Norðmanna vakið heimsathygli á undanförnum árum. Fjallað hefur verið um norsku fangelsin Bastoy og Halden í virtum fjölmiðlum víða um heim, meðal annars á CNN, í New York Times og Guardian. Í Noregi er endurkomutíðni í fangelsi mjög lág. Betrunarstefna sú sem Norðmenn hófu að innleiða fyrir tæpum áratug lofar mjög góðu. Þar eru markmið afplánunar skýr en afplánun á að vísa fram á veginn og tryggja farsæla endurkomu út í samfélagið.
Nú þegar frumvarp til nýrra laga um fullnustu refsinga er til umræðu á Alþingi er tilvalið að spyrja hvernig nýja stefnan gangi hjá Norðmönnum og hvað við hér á Íslandi getum lært af þeim.
Dagskrá fundarins:
13.00 Fundarstjóri setur fundinn
13.10 Erindi, Knut Storberget „Thinking new; punishment that works”
14.00 Knut Storberget situr fyrir svörum
14.30 Pallborðsumræður
Í pallborði sitja:
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu,
Guðrún Sesselía Arnardóttir, hrl,
Jón Þór Kvaran, meðferðarfulltrúi á Litla Hrauni,
Líneik Anna Sævarsdóttir, varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis,
Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunnar.
Aðalheiður Ámundadóttir stjórnar pallborðsumræðum.
Fundarstjóri: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Fundurinn fer fram á ensku og íslensku.