Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Helvíti í háskerpu

$
0
0

Undankeppni Eurovision er frábært sjónvarpsefni.

Þar eru saman komnir landsins verstu og klisjukenndustu lagahöfunda- og textahöfundar. Ruslið þeirra eru síðan flutt af leiðinlegustu og óeftirminnilegustu listamönnunum okkar og ófyndnustu menn landsins sjá um gamanmál inn á milli. Svo eru herlegheitin toppuð með Ragnhildi Steinunni sem er alltaf klædd eins og bjáni.

Og ekki má gleyma viðtölunum sem hún og Gunna Dís taka við keppendurna áður en þeir stíga á svið – þau eru einhver  tilgangslausasta froða sem sést hefur í sjónvarpi. Síst af öllu í veröldinni myndi ég vilja missa af þessu.

Ömurleikinn og vandræðalegheitin vinna þarna saman á ólýsanlegan hátt. Klisjurnar og kjaftæðið tvinna á skjánum saman eitthvað sem verður að algjöru listaverki í augum og eyrum þess sem fær að njóta.

Þetta er eins og þegar barn kúkar á stofugólfið hjá þér, þú getur ekki annað en staðið stjarfur í smástund á meðan þú áttar þig á aðstæðum. En svo þrífur þú þetta upp með bros á vör, veltandi fyrir þér í huganum hvað í andskotanum barninu gekk til.

Og vissulega kostar svona keppni peninga. En ég skal verja það með kjafti og klóm að sjónvarp allra landsmanna leggi í svona verkefni. Verðandi tónlistarmenn geta horft á þennan þátt og liðið betur í vitneskjunni um það að þeir verða allavega aldrei aumkunarverðari en þátttakendur í þessum skrípaleik. Þarna sést allt það versta sem íslensk tónlist hefur upp á að bjóða.

Sama hvað þú gerir þá verður þú aldrei jafn aumkunarverður og þetta fólk þarna, þú getur verið viss um það. Það er góð og hvetjandi lexía fyrir næstu kynslóð listamanna.

Ef vídeótækið mitt væri ekki komið á haugana þá væri ég að taka þetta upp. Algjörlega ógleymanlegt augnablik í íslenskri sjónvarpssögu. Allir sem koma að þessu gjörsamlega renna á rassgatið nema tæknimennirnir sem koma að útsendingunni. Þeir færa okkur hreint helvíti í háskerpu og ef þeir hefðu staðið sig verr, þá hefði það verið betra.

Bravó RÚV, bravó!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283