Ég er liðsfár og landið er stórt.
Það hafa borist margar fyrirspurnir um hvort einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvum geti skráð sig á undirskriftalistann.
Sérstaklega hafa verið nefnd dæmi um fólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem gjarnan vill taka þátt.
Til þess að mæta þessu hefur verið útbúið undirskriftablað. Ég veit að það er þegar farið að dreifa því á nokkrum stöðum.
Samstarfsmaður minn átti leið um Neskaupstað í vikunni og hitti fólk sem hefur staðið langa vakt og skilað sínu til samfélagsins. Við skuldum þeim nú að vel sé að þeim búið. Ekki veit hvort þau voru búin að skrifa undir, en eins og þið sjáið, lék enginn vafi á að þau studdu átakið heilshugar.
Mig langar að biðja um aðstoð við að koma listum til fólks, sem kýs blað og penna frekar en tölvuna. Þeir sem vilja taka þátt í því, geta sent mér póst á info@endurreisn.is.
Kári
Hér má finna undirskriftarlista sem prenta má út
HJÁLPARBEIÐNIHJÁLPARBEIÐNIÉg er liðsfár og landið er stórt.Það hafa borist margar fyrirspurnir um hvort einstaklingar sem ekki hafa aðgang að tölvum geti skráð sig á undirskriftalistann.Sérstaklega hafa verið nefnd dæmi um fólk á dvalar- og hjúkrunarheimilum sem gjarnan vill taka þátt.Til þess að mæta þessu hefur verið útbúið undirskriftablað. Ég veit að það er þegar farið að dreifa því á nokkrum stöðum.Samstarfsmaður minn átti leið um Neskaupstað í vikunni og hitti fólk sem hefur staðið langa vakt og skilað sínu til samfélagsins. Við skuldum þeim nú að vel sé að þeim búið. Ekki veit hvort þau voru búin að skrifa undir, en eins og þið sjáið, lék enginn vafi á að þau studdu átakið heilshugar.Mig langar að biðja um aðstoð við að koma listum til fólks, sem kýs blað og penna frekar en tölvuna. Þeir sem vilja taka þátt í því, geta sent mér póst á info@endurreisn.is.Kári
Posted by Endurreisum heilbrigðiskerfið on Friday, 29 January 2016