Þetta er hún Anna Líf. Önnu Líf teiknaði Lára Garðarsdóttir fyrir afmælisrit Kvennablaðsins sem kom út í nóvember 2015. Anna Líf er hin íslenska Bridget Jones – nýja besta vinkonan þín! Anna Líf er í boði Pennans.
Kvennablaðið kynnti nýverið til sögunnar leik þar sem við báðum lesendur að taka þátt með því að leggja Önnu Líf orð í munn eða gera henni upp hugsanir réttara sagt.
Sá lesandi sem bar sigur úr býtum að þessu sinni er Hulda Þórisdóttir en tillögu hennar má sjá hér að neðan! Kvennablaðið þakkar Huldu innilega fyrir þátttökuna og hún fær sendan glaðning frá okkur!