Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Katrín Júlíusdóttir sækist ekki eftir endurkjöri

$
0
0

Katrín Júlíusdóttir sendi félögum sínum í Samfylkingunni eftirfarandi bréf á Facebook þar sem fram kemur að hún sækist ekki eftir endurkjöri. Hér er bréf Katrínar í heild sinni:

Kæru félagar,

spennandi og krefjandi tímar eru framundan hjá okkur sósíaldemókrötum á Íslandi. Stærsta verkefnið er að mynda samhenta sveit sem tryggir sterka rödd jöfnuðar, réttlætis, gagnsæis og frelsis í pólitískri umræðu og aðgerðum.

Í yfir 20 ár hefur hreyfing jafnaðarmanna treyst mér fyrir ólíkum verkefnum, þar af hafið þið falið mér það mikilvæga verkefni að sitja á Alþingi Íslendinga sl. 13 ár. Þar hef ég á hverjum degi lagt mig fram um að gera mitt allra besta í mörgum ólíkum hlutverkum; í störfum nefnda, í forystu iðnaðarnefndar, í forystu EFTA/EES þingmannanefndarinnar ásamt því að gegna embætti iðnaðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.

Um leið og ég þakka ykkur fyrir þetta traust sem þið hafið sýnt mér, finnst mér mikilvægt að deila með ykkur ákvörðun sem ég hef tekið.

Mörg ykkar hafið skorað á mig undanfarið að sækjast eftir frekara forystuhlutverki í okkar hreyfingu nú á þessu vori og fyrir það traust og þá vináttu sem þið sýnið mér er ég afar þakklát. Ég hef hinsvegar tekið þá ákvörðun að sækjast ekki eftir endurkjöri í næstu alþingiskosningum og þar af leiðandi mun ég ekki bjóða fram krafta mína til frekari forystustarfa fyrir Samfylkinguna.

Ákvörðun mín um að þetta verði mitt síðasta kjörtímabil sem ykkar fulltrúi á þingi er persónuleg, ég finn að nú er rétti tíminn til að snúa mér að öðru. Á sama tíma og ég mun sakna samstarfsins við ykkur þá er ég líka spennt fyrir framtíðarævintýrum. Ég er lánsöm. Á fallega fjölskyldu, elska lífið og ætla að halda áfram að grípa ný og spennandi tækifæri með báðum höndum.

Ný flott kynslóð stjórnmálamanna á öllum aldri bankar nú á dyrnar. Þeim eigum við að fagna og treysta til að bera kyndil hugsjóna okkar inn í nýja tíma. Vil ég jafnframt nota þetta tækifæri til að hvetja ungt fólk til að láta til sín taka í stjórnmálum og móta þannig framtíðina við hlið reynsluboltanna.

Þetta er ekki kveðjubréf – það kemur þegar ég læt af störfum:)

Látum komandi misseri einkennast af gerjun og kraumandi umræðu um hugmyndir og framtíðarlausnir á verkefnunum sem við blasa.

Hlakka til að taka þátt í því með ykkur!

Ykkar,

Katrín


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283