Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Getur þú lagt fyrir 10 þúsund* á mánuði?

$
0
0

Ásta Guðrún Helgadóttir Pírati deildi eftirfarandi hugleiðingu á Facebook og gaf Kvennablaðinu leyfi til birtingar:

11865129_10153164402873520_2338805967095733475_oÉg var að skoða heimasíðu Landsbankans nú í gær. Þar kom fram að til þess að safna sér inn hálfri milljón þá þurfi maður að leggja fyrir rétt tæplega 10 þúsund krónur á mánuði í fjögur ár á einhvern reikning með einhverri ávöxtun.

Til þess að eiga fyrir útborgun sem hljóðar upp á 15% af söluvirði 25 milljóna króna eignar, kannski tveggja-þriggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu, þá þarf viðkomandi að eiga 3,75 milljónir.

Það tekur um það bil 28 ár að safna fyrir útborgun á íbúð hafi manneskja einungis tök á því að leggja fyrir 10 þúsund krónur á mánuði.

Námsmaður sem er í námi á námslánum hefur leyfi til þess að vera með tæplega 2,5 milljónir á ári í heildartekjur. Tæpar 1,5 milljónir í námslán og tæpa milljón í aðrar tekjur á ári. Þetta gerir rétt rúmlega 200 þúsund á mánuði, að meðaltali, ef allt gengur eins og í sögu.

Það sem ég er að spá: Hefur þú getað lagt fyrir 10 þúsund á mánuði? Þegar þú ert í vinnu eða þegar þú ert/varst í námi? Gætir þú lagt fyrir 10 þúsund krónur á mánuði án vandkvæða? Ég spyr, því þegar ég var í námi þá var það fjarstæður draumur. Hver króna varð að nýtast, en ég geri mér grein fyrir að staða fólks er æri misjöfn– þess vegna spyr ég… Getur þú lagt fyrir?

*Allar tölur eru rúnnaðar upp/niður til þess að einfalda lestur og reikning.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283