Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Endurreisum allt

$
0
0

Fréttatilkynning:

Hvernig býr maður til peninga og heilan helling þar að auki. Jú ef maður á banka þá getur maður búið til fullt af peningum. Það er hagkerfinu lífsnauðsynlegt að til sé nægjanlegt magn af peningum. Bankar búa til peninga úr engu eins og kemur fram í skýrslu Bank of England. Bankar búa til peninga þegar þeir veita lán. Þess vegna er hagkerfið algjörlega háð því að einstaklingar og fyrirtæki fari til bankanna og fái lán. Ef bankarnir veita ekki lán þá verður skortur á peningum. Það var það sem gerðist haustið 2008 á Íslandi.

Þar sem einkabankarnir stjórna magni peninga í umferð er hagkerfið í klóm þeirra. Þess vegna hafa einkabankarnir mun meiri völd í þjóðfélaginu en kjörnir fulltrúa okkar á Alþingi.

Seðlabanki Íslands getur líka búið til peninga úr engu og hafa seðlabankar nágrannalandanna gert ógrynni af peningum þannig og sett þá í bankakerfið. Seðlabanki ESB hefur búið til 2 trilljónir Evra á þennan hátt, þ.e. úr engu. Það kallast ”Quantitative easing” eða magnbundin íhlutun. Lög Íslands og ESB um seðlabanka kveða svo á að þeir mega búa til peninga fyrir banka en ekki ríkissjóði.

Með því að stofna samfélagsbanka á vegum hins opinbera og nota seðlabankann til að framleiða peninga fyrir samfélagsbankann þá er komin lausn á mörgu.

Vel er hægt að hugsa sér að seðlabankinn búi til peninga fyrir sjálfri verðtryggingunni á neytendalánum. Samfélagsbankinn kemur þessum peningum til skila. Þar með væri búið að kippa henni úr sambandi meðan við erum ekki búin að afnema hana.

Einnig er möguleiki að seðlabankinn búi til peninga sem samfélagsbankinn lánar ríkinu (eigenda sínum) og fyrir þá peninga er hægt að byggja sjúkrahús, skóla, vegi, brýr og margt annað. Það má kalla það magnbundna íhlutun fyrir almenning.

Slík magnbundin íhlutun í gegnum samfélagsbanka í eigu ríkisins gæti reist nýjan Landspítala sem við eigum síðan að stórum hluta skuldlausan.

Þegar kemur að endurgreiðslu lánanna þá hefur ríkið a.m.k. tvo möguleika. Það getur endurgreitt lánin en þar sem ríkið er eigandi samfélagsbankans þá fer hagnaður hans til ríkisins og þar með vaxtagreiðslurnar líka, því núllast þær út. Þar með er búið að minnka kostnað ríkisins um helming. Hinn möguleikinn er að seðlabankinn sé með lánin skráð á bókum sínum sem ógreidd lán um aldur og ævi. Það gera þeir í Kína og virkar vel. Þetta eru hvort sem er peningar búnir til úr engu og því ekki teknir frá neinum.

Þetta veldur ekki verðbólgu því framleidd eru ný verðmæti fyrir þessa peninga. Þess vegna er ekki of mikið af peningum að eltast við of lítið af vörum.

Við í Dögun stjórnmálasamtökum héldum fund síðastliðinn laugardag í Norræna húsinu um samfélagsbanka. Þar voru erlendir sérfræðingar komnir til að kynna okkur þessi mál. Set hér inn upptöku af þeim fundi þar sem þessi mál eru útskýrð betur. Hér má svo lesa nánar um samfélagsbanka.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283