Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Flottar eldri fyrirsætur

$
0
0

„Hún á ekki að vera þarna,“ sagði fjögra ára stelpa og horfði hneiksluð á auglýsingamynd af 81 árs gamalli konu í fallegri úlpu frá fyrirtæki sem framleiðir einkum kuldafatnað.

„Af hverju ekki? Hver á að vera þarna í staðinn?“ sagði mamma hennar.

„Þessi þarna,“ svarað litla stelpan og benti á stóra mynd af ungri konu á næstu síðu við hliðina í dagblaðinu. Svo fór hún inn í stofu að leika sér.

„Finnst þér þetta ekki skrýtið að hún skuli segja þetta,“ sagði mamma hennar við mig þegar krakkinn var farinn. Ég samsinnti því.

„Hvernig má vera að fjögra ára barn sé orðið svona full af aldursfordómum?“ sagði mamman.

„Já þetta er merkilegt, fróðlegt væri að vita hvers vegna,“ svaraði ég.

„Þetta greinilega síast bara inn í krakka svona snemma. Þeir sjá auglýsingar og myndir í blöðum og oftast eru myndirnar af ungu fólki. Þau eru greinilega búin að fatta hlutverkaskipanina í meginatriðum, það þarf að gera eitthvað í þessu,“ svaraði mamman.

Svo mörg voru þau orð. Sennilega er þetta rétt greining og líka að það þurfi að gera „eitthvað í þessu.“ Þess betra er það framtak að fá konur af léttasta skeiði til þess að auglýsa fatnað.

Fínt hjá fyrirtækinu sem um ræðir að velja fyrirsætu rösklega áttræða. Vonandi verða þær fleiri. Því meiri margbreytni sem er sýnileg í samfélaginu því meiri líkur á að æskudýrkun láti undan síga.

Þessi þróun er víðar, ég sá í dönsku glansblaði vetrartískuna 2016 auglýsta á mörgum síðum af 78 ára gamalli konu. Hún var beinlínis stórglæsileg í öllum þeim fatnaði sem hún sýndi. Dökkhærð, brosmild, Raunar er allt sem mælir með því að svona verði þróunin hér líka.

Þjóðin er að eldast og fólkið sem er að færast framar í aldursstiganum mun ekki sætta sig við að vera sett til hliðar þótt það sé ekki lengur ungt eða miðaldra. Það er af hinu góða. Eina sem gæti háð því er hve naum peningaráð það hefur margt hvert. Vonandi stendur það til bóta sem fyrst. En það sem fólk þó getur keypt má sannarlega vera í tísku. Meðan fólk er lifandi og hresst á það sama rétt og aðrir til þess að láta ljós sitt skína sem víðast í íslensku samfélagi. Vel klætt eldra fólk ógnar engum heldur eykur fjölbreytileikann.

Screen Shot 2016-02-22 at 09.35.05

Fyrirtækið sem valdi 81 árs fyrirsætuna er öðrum fyrirtækjum gott fordæmi. Það sýnir líka hyggindi, kaupendahópur tískufatnaðar er að eldast. Liðin er sú tíð að eldra fólk gengi í sömu, gömlu fötunum ár eftir ár. Það vill vera smart og það getur svo sannarlega verið það. Allt sem þarf er að hugsa dæmið til enda. Velja sér föt sem passa, eru hæfilega þægileg en fara samt vel og eru í tískulínu hvers tíma.

En það er ekki endilega við yngra fólk að sakast þó þetta sjónarmið hafi átt erfitt uppdráttar lengi vel. Fyrir nokkuð mörgum árum heimsótti ég eldri konu sem þá var komin á heimili fyrir aldraða. Meðan við sátum saman á bekk í sólskini kom kona á hennar aldri gangandi. Sú var klædd í tískuföt, mjög pæjuleg. Konan sem ég var að heimsækja hvíslaði að mér: „Sjáðu hvernig hún er, alltaf í fötum eins og fyrir unga konu. Ég kann ekki við þetta. Mér finnst fólk verða að sætta sig við að eldast.“Ég svaraði: „Mér finnst hún alveg mega vera svona klædd. Þú gætir fengið þér svona föt líka.“ En mín kona var ekki á því.

„Ég skal segja þér að konurnar hér hafa ekki áhuga á að tala mikið við hana úr því hún klæðir sig svona. En körlunum líst vel á hana, þess vegna gerir hún þetta.“ Sem sagt, þarna voru konur á móti konu, bara af því að hún klæddi sig í tískuföt. Nú er þetta sjónarmið sennilega að mestu horfið. Það er fínt. Vonandi verða tískumyndir af eldri konum og auðvitað körlum líka svo algeng sjón að börn ekki verði hissa og finnist eitthvað rangt við þannig myndir. Það myndi birta til í samfélaginu þegar slíkum fordómum væri eytt og ekki veitir af. Fólk á að lifa lífinu lifandi meðan það er lifandi.

Ljósmyndir birtar með leyfi 66°Norður


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283