Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ný fjós í stað nýs Landspítala

$
0
0

Guðbjörn Guðbjörnsson skrifar:

 

Landspítalinn er fullur af sjúklingum og liggja þeir víða úti á gangi, því ekkert pláss er til á sjúkrastofum spítalans. Sjúklingar eru beðnir að koma ekki á sjúkrahúsið nema að þeir séu dauðvona.

Vegna skorts á viðhaldi liggur stór hluti sjúkrahúsa landsins annaðhvort undir skemmdum vegna leka eða er nú þegar orðnar myglusvepp að bráð. Læknar og annað starfsfólk hefur verið frá starfi mánuðum saman vegna heilsubrests.

Við Íslendingar virðumst hvorki hafa efni á viðhaldi sjúkrahúsa, byggingu nýs sjúkrahúss eða endurnýjunar á tækjabúnaði Landspítalans.

Í 1. gr. Samnings um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 19. febrúar sl. milli ríkisstjórnar Íslands, undirrituðum af Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra annars vegar og Sigurði Inga Jóhannssyni landbúnaðarráðherra hins vegar og af forystu Bændasamtakanna og Landssambands kúbænda, stendur eftirfarandi texti:

Að greinin geti endurnýjað framleiðsluaðstöðu í samræmi við auknar kröfur um aðbúnað og velferð gripa.

Það er engum blöðum um það að fletta að aðbúnaður kúa og sauðfjár nýtur meiri samúðar og athygli hjá Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum en sjúklingar þessa lands og eldri borgarar. Sjálfur bíð nú aðgerðar vegna illkynja krabbameins, en aðgerð mín tefst um nokkra mánuði vegna mikils álags á lækna og hjúkrunarfólk Landspítalans, auk þess sem aðeins einn aðgerðaþjarkur er til á Landspítalanum, sem er í gangi nótt sem nýtan dag.

Ég hugga mig þó við að aðbúnaður kúa í íslenskum fjósum er að lagast, þótt krabbameinið hjá sjálfum mér gæti breiðst út á meðan ég bíð aðgerðar minnar.

Myndast hefur gjá milli þings og þjóðar. Ég spyr ykkur kæru lesendur, er ekki kominn tími á nýja búsáhaldabyltingu og að forseti landsins rjúfi þing og boði til kosninga til Alþingis?

Grein einnig birt á Eyjunni og birt hér með leyfi höfundar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283