Benecta og Benecta Sport eru ný íslensk fæðubótarefni unnin úr rækjuskel sem stuðla að úrvinnslu á bólgum í líkamanum og verndun vefja í stoðkerfi. Benecta fæðubótarefnin eru íslensk og framleidd af líftæknifyrirtækinu Genís hf. á Siglufirði.
„Hér er um algjöra nýjung að ræða og vörur með mikla sérstöðu þar sem þær hjálpa til við bólguúrvinnslu og styðja við náttúrulega viðgerðarferla í líkamanum,“ segir Guðný Traustadóttir, markaðstengill hjá Vistor.
„Benecta og Benecta Sport eru ný fæðubótarefni, samsett úr kítínfásykrum sem unnar eru úr rækjuskel. Þau hafa þann eiginleika að bindast próteinum sem aukast í bólgu og hvetja til bólguúrvinnslu og verndun vefja í stoðkerfi.“
BENECTA fyrir fólk með bólgur í líkamanum
Benecta hjálpar líkamanum að vinna úr bólgum og styður við uppbyggingu vefja. Með daglegri inntöku má draga úr bólgum og óþægindum. Jafnframt stuðlar Benecta að endurnýjun vefja (s.s. brjósks, sina og beina) og hjálpar þannig til við að viðhalda heilbrigðu stoðkerfi. Sykrungarnir bindast bólgupróteinum í líkamanum og vinna þannig gegn ákveðnum bólguhvetjandi ferlum. Með því má draga úr óþægindum og auka úthald og orku.
BENECTA SPORT fyrir aukinn árangur í íþróttum
Benecta Sport er sérþróað fyrir íþróttafólk með það að markmiði að stuðla að auknu úthaldi við æfingar. Jafnframt styður Benecta Sport við náttúrulega viðgerðarferla í líkamanum og flýtir fyrir endurheimt eftir æfingar. Benecta sykrungarnir bindast bólgupróteinum sem myndast við vöðvaáreynslu og stuðla að viðgerð og endurheimt í vöðvum og gera þá hæfari í næstu átök.
Sandra Hrönn Crossfit-þjálfari segir frá:
Með inntöku Benecta Sport 30 mínútum fyrir æfingar má hámarka nýtingu á ferlum sem fara í gang vegna álags og flýta fyrir árangri. Benecta Sport hjálpar vöðvum að nýta fitusýrur í stað glúkósa við æfingar. Það dregur úr mjólkursýrumyndun og kemur í veg fyrir að gengið sé of hratt á glýkógenbirgðir vöðvanna.
Ekki skal taka meira en tvö hylki daglega því of stór skammtur getur dregið úr virkni. Þróun Benecta Sport hefur staðið yfir undanfarinn áratug í samstarfi við íslenska og erlenda vísindamenn.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Benecta og Benecta Sport eru byggð á íslensku hugviti og framleidd hér á landi af líftæknifyrirtækinu Genís hf. á Siglufirði. Genís hf. byggir á
sérhæfðri þekkingu tengdri framleiðslu á lyfjum og fæðubótarefnum úr rækjuskel.
- Benecta og Benecta Sport er ætlað fullorðnum, 18 ára og eldri
- Benecta er ekki ætlað þunguðum konum eða einstaklingum með skelfiskofnæmi
- Engin aukaefni eru í Benecta
- 60 hylki eru í glasinu
- Fæst í apótekum og í versluninni Perform.is
Fylgist með Benecta á Facebook og á heimasíðu Benecta