Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stórsvindlari mættur til leiks undir nýju nafni

$
0
0

Kvennablaðinu hafa borist ábendingar um að frægur svindlari skírður Halldór Viðar Hafsteinsson líka oft nefndur Halldór Viðar Sanne (sem er móðurnafn hans) sé mættur til leiks á nýjan leik undir nafninu Aldo Bae. Full ástæða er til að rifja upp sögu hans en hún er lyginni líkust.

Prófíllinn á LinkedIn

Screen Shot 2016-03-15 at 15.05.53

 

Aldo Bae er samkvæmt upplýsingum á LinkedIn búsettur í Kanada og á býsna langa og merkilega viðskiptasögu með helstu stórfyrirtækjum heims, þar á meðal Coca Cola, Budweiser, Visa, MasterCard, Hyundai og Volkswagen.

Yfirlit starfsferils Aldos

Screen Shot 2016-03-15 at 15.04.51

Skjáskot af LinkedIn

 

Undir þessu yfirskyni hefur hann eignast tæplega 500 tengingar á LinkedIn og þar á meðal fjölmarga Íslendinga. Samkvæmt gömlum mola á Eirikurjonsson.is er Halldór þessi þekktur í Hafnarfirði undir nafninu Halldór eða Dóri hrappur. En hver er Halldór Viðar Hafsteinsson, Dóri hrappur, stundum Halldór Viðar Sanne og nú síðast Aldo Bae?

 

Staldraði stutt við í hótelbransanum

Samkvæmt ferilskrá gegndi Halldór hótelstjórastöðu á Hótel Smára þar til nú í mars en í samtali við starfsmann var okkur tjáð að hann hefði aðeins staldrað við mjög stutt eða í 19 daga. Eigendur hótelsins vildu ekki ræða aðkomu Halldórs frekar að svo stöddu. Samkvæmt ferilskrá Halldórs, Aldos, Dóra – á LinkedIn var hann ráðin af nýjum eigendum til að snúa við rekstrinum og bæta afkomu og auka þjónustu. Má telja næsta víst að ekki hafi honum auðnast ætlunarverk sitt.

Screen Shot 2016-03-15 at 15.22.29

Skjáskot af LinkedIn

Furðulegur ferill

Halldór var handtekinn í Kaupmannahöfn haustið 2012 og sætti gæsluvarðhaldi þar til dómur féll í máli hans í mars 2013. Hann var sakfelldur fyrir tæplega 100 brot sem hann játaði en hann var talinn hafa svikið hundruð iPhone símtækja út úr grandalausu fólki og var gerður brottrækur frá Danmörku að afplánun á Kvíabryggju lokinni. Dóri hrappur taldi víst viðskiptavini sína á og þar á meðal íslenska námsmenn  að kaupa símana á raðgreiðslum og selja þá síðan fyrir ágóða á Íslandi en ekkert varð um efndir og hafði Halldór tugi milljóna upp úr krafsinu.

Lygalaupnum er margt til lista lagt en hann auglýsti ennfremur lífvarðanámskeið sem fara átti fram í Höfn árið 2013 sem margir greiddu fyrir tæplega 400.000 krónur en aldrei varð af námskeiðinu. Samkvæmt frétt Viktoríu Hermannsdóttur hjá DV höfðu Íslendingar verið meðal þeirra sem greitt höfðu námskeiðsgjaldið og hafði hann jafnvel hótað óánægðum viðskiptavinum barsmíðum.

Góðgerðarstarf Halldórs

Árið 1994 er lítil frétt í Helgarpóstinum þar sem kemur fram að Halldór hafi staðið straum af myndbandi með laginu Kevin flutt af hljómsveitinni Sexmenn til styrktar baráttunni gegn alnæmi.

Screen Shot 2016-03-15 at 14.54.24

Skjáskot af timarit.is

Hér má sjá myndbandið og við hvetjum ykkur til að horfa á það. Ljóst má vera að mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því að Halldór eða Aldo Bae lagði alnæmisbaráttunni lið og afréð að svikamyllur, þjófnaðir og prettir ættu betur við sig.

Aldo Bae stýrir nú fyrirtækinu GoldCloud Inc sem stofnað er í Nevada þó það sé eitthvað málum blandið samkvæmt skráningu en fyrirtækið er með starfsemi í London, New York, Toronto og Los Angeles samkvæmt LinkedIn.

Skjáskot af LinkedIn

Skjáskot af LinkedIn

 

Á vefnum Whoisology kemur fram að lénið goldcloud.xyz er skráð á Aldo Bae  ásamt frekari upplýsingum. Ekki er gott að átta sig á því hverskyns fyrirtæki þetta er þrátt fyrir loforð lógósins um hlutdeild í háloftagulli.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283