Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ábyrgð ráðherra?

$
0
0

Hafsteinn Sverrisson viðskiptalögfræðingur skrifar:

Screen Shot 2016-03-25 at 10.51.19
Þegar kemur að umræðunni varðandi eignir eiginkonu forsætisráðherra langar mig að halda því fram að reiði fólks snúist að mestu leiti að þeirri ábyrgð sem forsætisráðherra beri að axla gagnvart kjósendum sínum og í raun landsmönnum öllum, þar sem hann tók þá ákvörðun að halda þessum eignum leyndum. Svo má vera að fólk vilji taka þá umræðu hvað varðar ákvörðun eiginkonu hans að geyma fjármuni í erlendum bönkum frekar en Íslenskum, en hana ætlum við ekki að taka hér.

Sigmundur Davíð tók þá ákvörðun að fara í stjórnmál, bjóða sig fram til alþingiskosninga sem endaði með að hann tekur stöðu forsætisráðherra. Honum hefði átt að vera ljóst að ráðherrastöðunni fylgir rík ábyrgð gagnvart landsmönnum öllum hvort sem lög kveða svo á um eður ei.

En svo virðist vera að sá sem gegnir stöðu ráðherra þurfi ekki að bera, né axla ábyrgð gangvart einu né neinu. Samkvæmt lögum og reglum virðist ráðherra geta gert það sem honum sýnist og engin þörf á að spyrja kóng né prest.
Í Fréttablaðinu þann 24. mars síðastliðin bendir Sigmundur Davíð á að honum hafi ekki borið nein bein skylda, né sé til þess ætlast að menn skrái eignir maka í þessari hagsmunaskráningu. Þessi ágæti drengur segist byggja sitt “siðferði á lögum og reglum”. Þá segir hann jafnframt að “siðferðisleg skylda hjá mér sem stjórnmálamanni snýst um skyldur mínar við samfélagið og að hámarka árangur minn fyrir það“.

Þá er hér vert að spyrja hvort að háttvirtur forsætisráðherra telji sig ekki hafa brugðist sinni siðferðislegri skyldu sem stjórnmálamaður við samfélagið að halda þessum eignum leyndum?

Bar honum ekki siðferðisleg skylda til að tilkynna kjósendum þessa hagsmuni áður en þeir gengu inn í kjörklefana?
Ef svo er að honum hafi borið siðferðisleg skylda til þess er þá ekki lágmarkskrafa að hann axli ábyrgð á sínum skyldum og víki sem forsætisráðherra?

Eru ekki líkur á því að eitthvað af atkvæðum sem fóru til Framsóknarflokksins í síðustu alþingiskosningum hefðu farið annað, ef kjósendur hefðu vitað af því að eiginkona eins frambjóðenda flokksins ætti fjármuni í erlendu skattaskjóli?
Líkt og við vitum öll þá ríkir ráðherraræði hér á Íslandi, þeir virðast hafa heimild í lögum og reglum til að haga sér eins og þeim sýnist, þeir virðast ekki þurfa að svara fyrir eitt né neitt. Svo vilja margir halda því fram að þessir aðilar sem sitja í stöðu ráðherra séu heilagir, enda fara þeir með framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið. Því er kannski ekki skrýtið að þeir komist upp með að hugsa, ég geri það sem ég vil og spyr engan að því.

Samkvæmt Lögfræðiorðabók með skýringum sem útgefin var af Bókaútgáfunni Codex og Lagastofnun Háskóla Íslands undir ritstjórn Dr. Páls Sigurðssonar prófessor, segir að með hagsmunatengslum sé átt við að fjárhagslegir eða persónulegir hagsmunir tveggja eða fleiri manna tengist t.d. af fjölskylduástæðum eða vegna sameignar eða annars konar sameiginlegra fjármunaréttinda. […].(bls. 180).

Þó þarna sé vísað til náinna tengsla milli aðila stjórnsýslumáls og manns sem fer með stjórnvald í því máli, sem og milli dómara og málsaðila, hljótum við að geta gengið að því vísu að gerðar séu álíka kröfur til þingmanna, en svo er því miður ekki.

Ég verð að viðurkenna að ég er orðin afar þreyttur á að þurfa að sitja og horfa upp á þá staðreynd að ráðherrar geti hagað sér nánast eins og þeim sýnist, þeir þurfi nánast ekki að lúta neinum lögum eða reglum.

Svona háttsemi er ekki að koma fram í fyrsta skipti og mun án efa ekki verða það síðasta, verði ekki farið í verulegar breytingar á stjórnskipun Íslands. Þessir flokkar hafa fengið mörg tækifæri til að sýna fyrir hverja þeir eru mættir á þing til að vinna og í flestum ef ekki öllum tilfellum hafa þeir ekki verið að vinna fyrir fólkið, heldur nánast eingöngu fyrir atvinnurekendur og fjárfesta, hvort sem eru innlendir eða erlendir.

Hvort sem til eru skráðar lög og reglur eða ekki þá er ekki flókið að sjá að ég ber skyldu til að haga mínum málum á ákveðin hátt gegni ég stöðu ráðherra eða þingmanns.

Háttvirtur forsætisráðherra Sigmundur Davíð ákvað að halda leyndu frá kjósendum þeim fjárhagslegum hagsmunum sem eiginkona hans á í svokölluðu erlendu skattaskjóli, sem má ætla að séu einnig hans eigin hagsmunir t.d. út frá lögum um hjúskap.

Því má ætla að staða Framsóknarflokksins eftir síðustu alþingiskosningar hefði ekki orðið eins sterk og raun bar vitni hefðu þessar upplýsingar legið fyrir.

Hvað sem lög og reglur segja þá ætti háttvirtum forsætisráðherra að vera það ljóst að líklegt væri að hann færi ekki með stöðu forsætisráðherra ef þessar upplýsingar hefðu legið fyrir við kjör hans.

Þar sem hann virðist vísa frekar oft til siðferðis ætti það að vera honum fyllilega ljóst að hann hefur engan annan kost en að segja af sér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283