Íris Ósk Laxdal býr í Kaupmannahöfn ásamt kærasta sínum Birni Steinari og börnum þeirra tveimur , Viktori Núma 6 ára og Sölku Líf 1 árs. Kaupmannahöfn er fjölbreytt borg, skemmtileg og iðar af mannlífi segir Íris. Þau fluttu þangað fyrir um 7 árum síðan til að stunda nám og nú búa þau í hverfi sem heitir Nørrebro, en það hefur á síðastliðnum árum verið í miklum uppvexti.
Hér segir Íris Kvennablaðinu frá skemmtilegum degi í þessari vinsælu borg!
Ég myndi byrja daginn á því að fara niður á Jægersborggade í Meyers bakarí og kaupa gott súrdeigsbrauð og jafnvel nokkrar súkkulaði skonsur. Hinum megin við götuna er besta kaffihús í borginni Coffee Collective og eru þeir meistarar að laga kaffi og geturðu fengið það sem þú óskar þér. Gatan Jægersborggade hefur á síðastliðnum árum orðin ein vinsælasta gatan í Kaupmannahöfn. Þar finnurðu meðal annars michelin veitingastaðinn Relæ, Manfreds og vin, kaffihús, bari og hönnunarverslanir ásamt vinnustofum hönnuða.
Því næst væri upplagt að ganga í gegnum Assistens Kirkjugarð sem er gamall kirkjugarður þar sem margir þekktir einstaklingar eru grafnir t.d. H.C.Andersen. Þessi garður er enginn venjulegur kirkjugarður því hann þjónar einnig sem almenningsgarður. Hingað streymir fólk að hlaupa, ganga með barnavagnanna og á sumrin er fólk að sóla sig og njóta.
Hinum megin við kirkjugarðinn erum við að nálgast Elmegade, þessi gata og hverfið í kring er góður staður að versla. Flottar fataverslanir með danskri hönnun og skóverslanir sem vert er að skoða ásamt huggulegum kaffihúsum við Sankt hans Torv. Þar sem við erum miklir matarunnendur finnst okkur virkilega skemmtilegt að kíkja í Torvehallerne sem er við Nørreport lestastöðina. Þessi markaður er stútfullur af ferskum afurðum og gómgæti sem ekki er hægt að standast. Einnig er frábær tapasstaður Tapa del Toro í annari byggingunni sem ég mæli með að prófa, fá sér nokkrar snittur og vin með. Héðan er stuttur gangur niður í miðbæ og mæli ég með hliðargötunum frá Købmagergade , t.d. Fiolstæde og Pilestræde til þess að versla. Annars er líka alltaf skemmtilegt að skoða mannlífið á Nyhavn og ganga meðfram höllinni í átt að litlu hafmeyjunni eða fara í gegnum Botanisk have.
Um kvöldið ef málið væri að fara út að borða þá myndi ég mæla með nýjum stað sem heitir Amass. Þessi staður er aðeins í dýrara lagi en yfirkokkurinn Matthew Orlando er fyrverandi yfirkokkur á Noma , besta veitingarstað í heimi og hefur þessi staður hlotið virkilega góða dóma. Aðrir veitingarstaðir sem vert er að mæla með eru Bror, Mother, Kung Fu 2, Madklubben, Relæ og Manfreds. Seinna um kvöldið væri upplagt að fara á Mikkeller & Friends bjórbar. Þessi staður er í miklu uppáhaldi og hægt er að prófa bjóra á um 40 dælum og upplifa skemmtilega nýja bragðtóna í bjór. Stærri staðurinn er á Stefansgade í Nørrebro nálægt Jægersborggade og hinn er í Vesterbro.
Einnig er Malbec argentískur vinbar yndislegur staður, hugguleg kertaljós og dýrindis vín í boði ásamt léttum veitingum. Kokteilstaðir eru einnig vinsælir og væri það helst að nefna Ruby, Salon 39 Izakaya bar. Annars er það svo frábært við þessa borg að valmöguleikarnir eru óteljandi.
The Coffee Collective, Jægerborggade 10, 2200 København N Torvehallerne, K
K Madklubben Vesterbro, Vesterbrogade 62, 1620 København
Frederiksborggade 21, 1360 København
Amass Restaurant, Refshalevej 153, 1432 København
Mikkeller & Friends, Stefansgade 35, København N
Malbeck, Istegade 61, 1650 København V