Henti í þetta einfalda en góða salat áðan.
Léttsteikti brokkolíið bara úr dálitlu smjöri (ósöltuðu að sjálfsögðu, enda finnst mér betra að fá að salta sjálf) og örlitlu maldonsalti.
Sjóðið eggin, þvoið salatið, skerið reykta silunginn og útbúið sinneps/hunangssósu.
Hlutföll? Nei…æ…ég mældi það nú ekki…
Einhvern veginn svona geri ég sósuna:
1 msk af sinnepi og vænu dassi af hvítvínsediki blandað saman í skál.
Ólívuolíu hellt útí í mjórri bunu og hrært allan tímann – eigum við að segja 100-150ml. Þar til sósan þykknar og ykkur finnst hún vera góð skulum við segja;)
Það er betra að nota frekar bragðlitla ólívuolíu í sósuna. Eins má nota einhverja aðra bragðlitla olíu, en ég er bara svo svakalega hrifin af ólívuolíu að það er eiginglega engin önnur olía til hér á heimilinu….
Bragðbætt með smá hunangi (svona matskeið eða aðeins minna), smá maldonsalti, hvítum pipar og skvettu af kreistri sítrónu.
Passar með öllu – allavega mjög mörgu.
Verði ykkur að góðu!