Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ráðherrar í öðru sólkerfi en almenningur

$
0
0

Heitar umræður eru í samfélaginu um það hvort ríkisstjórnin njóti trausts til áframhaldandi starfa. Páll Magnússon var gestur í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og hafði eftirfarandi til málanna að leggja um þann trúverðugleikavanda sem ríkisstjórnin á við að stríða um þessar mundir.


Gefum Páli Magnússyni orðið:

„Við höfum menntamálaráðherra sem sannanlega bað um og fékk persónulega og fjárhagslega fyrirgreiðslu hjá aðila sem hann síðan veitti pólitíska fyrirgreiðslu varðandi viðskiptahagsmuni í Kína. Þetta er fullframinn hagsmunaárekstur og spilling. Ríkisstjórnin ákvað að þola þetta. Og flokkurinn, þingflokkur viðkomandi ráðherra, ákvað að þola honum þetta.“

„Eftir þetta er búið að setja siðferðismark – eða svona standard – ríkisstjórnarinnar niður fyrir hnéhæð. Þannig að það er voðalega fátt sem hægt er að gera eftir þetta sem kalla myndi til dæmis á afsögn ráðherra.“

„… Ef þú raðar öllum þessum málum saman þá er það þannig að ríkisstjórnin á við mikinn trúverðugleikavanda að ráða. Hver myndi til dæmis treysta þessari ríkisstjórn eftir það sem upp hefur dúkkað núna til þess að selja bankana sem hún hefur fengið í fangið frá kröfuhöfunum.“

“Treystir almenningur í þessu landi ríkisstjórninni til þess að fara með öll þessi verðmæti fyrir hennar hönd?“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283