Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hvað ef David Cameron myndi neita BBC um viðtal?

$
0
0

Bogi Ágústsson fréttamaður var gestur hjá Gísli Marteini í þættinum Vikan með Gísla Marteini í gær þann 1. apríl 2016. Þar komu til tals fréttir af aflandsfélögum ráðamanna sem og sniðganga forsætisráðherra í garð Ríkisútvarpsins en hann hefur í kjölfar fregna af aflandsfélagi sem tengist honum neitað Ríkisútvarpinu um viðtal í langan tíma.

Screen Shot 2016-04-02 at 20.53.29

Reynsluboltinn Bogi Ágústsson sem hefur starfað sem fréttamaður í tæplega 40 ár og réði Sigmund Davíð til starfa á fréttastofunni hafði þetta um  framkomu forsætisráðherra að segja:

„Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, vegna þess að ég starfa nú á fréttastofu sem, burtséð frá deginum í dag (1. apríl innsk. blaðam) tekur sig býsna alvarlega og reynir að segja eins sannar og réttar fréttir og mögulegt er.

Hvernig hefði það gengið í Bretlandi, ef eitthvað svipað hefði komið fyrir David Cameron og hann hefði neitað BBC um viðtal í allan þennan tíma sem Sigmundur Davíð hefur gert?

Við höfum á hverjum einasta degi reynt að ná í hann og við fáum alltaf afsvar. Og nú á Sigmundur Davíð sem ég réði til starfa á Fréttastofunni fyrir 16 árum og var viðloðinn við þetta fyrirtæki í svona sjö ár – hann á að vita að við erum ekki í tilgangsfréttamennsku – við erum ekki að þjóna einum eða neinum nema eigendum okkar sem er almenningur í landinu.

Við erum ekki að þjóna pólitískum öflum, ekki Evrópusambandinu, ekki hagsmunasamtökum – almenningi í landinu.

Við viljum að fólk fái upplýsingarnar og þær séu lagðar á borðið, svo getur fólk metið þær upplýsingar og tekið sína afstöðu.“

 

Lára Hanna Einarsdóttir birti þennan bút úr viðtalinu á Youtube og þið getið séð spjall Boga og Gísla Marteins hér:

 

 

 

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283