Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gjörningaveður

$
0
0

Í grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem ber heitir Hvað snýr upp og niður er eftirfarandi kafli:

„Hvernig var skráð eignarhald lagfært hjá umsýslufyrirtækinu?

Hlutabréf Sigmundar í félaginu var ógilt og nýtt hlutabréf gefið út á nafn Önnu. Þar með varð Wintris að fullu skráð í eigu hennar, í samræmi við skilning okkar beggja um að eini tilgangurinn væri að halda utan um fjölskylduarf hennar.

Við breytinguna voru öll viðeigandi skilyrði uppfyllt með því að hlutirnir sem skráðir höfðu verið á Sigmund voru framseldir til Önnu.  Stjórn félagsins ógilti hlutina og gaf út nýtt hlutabréf á nafn Önnu fyrir jafnmörgum hlutum.
Verð hlutanna við framsalið var einn dollar enda hlutirnir verðlausir í upphafi og framsalið formleg lagfæring.

Eftir að skipt var um umsýslufélag var stjórn félagsins jafnframt breytt þannig að Anna varð eini stjórnarmaður félagsins en fram að því hafði umsýslufyrirtækið lagt til stjórnarmenn eins og áður greinir.“

Setjum sem svo að félagið Wintris Inc. hefði skuldað það sem átti þegar þessi fjármálagjörningur sem sem SDG lýsir hér að ofan átti sér stað. Hefði hann getað með sama hætt losað sig undan skuldum með því að selja Önnu sína hluti á dollar samtals? Og hefði hún þá orðið ein skuldari ríflega milljarðs? Og SDG laus undan allri ábyrgð?

Við hrunið misstu margir allt. Til er dæmi þar sem fjölskylda velti því fyrir sér hvort að sameign í fjölskyldunni sem var skuldlaus mætti færa með gjörningi á nafn ótengds aðila – þau myndu selja viðkomandi eignina fyrir slikk– segjum dollar – svo koma mætti eigninni í skjól.

Leitað var leiðsagnar lögmanna sem töldu fólkið af slíkum gerningi því þau yrðu hundelt og gerningurinn lýstur ómerkur fyrr eða síðar. Sameignin fór í skuldahítina og ævistarf þriggja ættliða þar með.

Sigmundur Davíð lýsir því hvernig hann með gerningi afsalaði sér hlutum sínum í Wintris Inc. og þar með ábyrgð og aðild. Hann hefur jafnframt látið í það skína að Wintris Inc. sé honum með öllu óviðkomandi og margir stuðningsmenn hans álíta það einnig.

Þorri almennings er semsagt bara asnar fyrir að hafa ekki flutt eigur sínar og skuldir á nátengda aðila með gjafagerningi þegar bankarnir sópuðu til sín aleigu og ævistarfi fólks á Íslandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283