Nú er tími árshátíða að ganga í garð og ekki seinna vænna að fara að huga að tónlistinni í sumarbrúðkaupunum og fékk ég af því tilefni til mín DJ dúóið Dick & Dyke í smá viðtal, en þau hafa verið gríðarlega eftirsótt í hinar ýmsu samkomur, ásamt því að hafa reglulega tryllt lýðinn á skemmtistöðum bæjarins
Kolbrún : Hvernig kom þetta dásamlega samstarf ykkar til?
D&D : Við vorum fyrir fáeinum árum stödd á skemmtistað, algjörlega komin með gubbuna af lagavalinu. Fengum okkur í raun ofboðslega fullsödd af að dilla rössunum við dragúldna tónlist sem við vorum ekki að tengja við, hvað þá einhver annar. Við horfðumst í augu og bara sögðum, „NEI – eigum við ekki bara að hætta þessu rugli og sjá um þetta sjálf“. Við settum okkur í samband við rekstrarstjóra bleiku frúarinnar Barböru (skemmtistaður á Laugavegi 22 sem nú heitir KÍKÍ) þegar hún var og hét og sögðum að við værum með villtar hugmyndir af glæsilegum dansiböllum og að við vildum í raun „redda“ þessu.
Kolbrún : Hverju ætluðuð þið að redda og hvernig fóruð þið að því?
D&D : Við ætluðum okkur bara almennt að redda tónlistarmálum á skemmtistöðum og veislusölum landsins. Nú , það sem okkur fannst vanta var að DJ ar væru almennt hressari. Þar sem við erum svo ótrúlega hýr og glöð og sjúk í tónlist þá var þetta í raun alveg borðliggjandi. Við bara mætum á staðinn og reddum málunum. Við myndum alltaf viss tengsl við fólkið á dansgólfinu, mætum sjálf út á gólfið í búningunum okkar og missum okkur aðeins í gleðinni.
Við höfum rosaleg sambönd út um allan bæ og það vill svo vel til að ein vinkona okkar er sminka og hárgreiðslukona. Þetta er heimsmælikvarða pía. Hún er stundum soldið upptekin þegar Russel Crowe eða Ben Stiller eða Tom Cruise er á landinu í tökum en annars er hún almennt okkar einkasminka. Og þessvegna erum við stundum svona geitur og tígrisdýr.
Kolbrún : Afhverju kallið þið ykkur DJ Dick & Dyke?
D&D : Stórt er spurt og fátt svara, en svona eftir á að hyggja þá hefði kannski verið betra að hafa það eitthvað allt annað, eða ekki. Sumum finnst nafnið svona í grófari kantinum og þetta passar kannski ekki beint á auglýsingaspjaldið, eitthvað með sómatilfinninguna að gera. Nafnið var ákveðið í einskonar stundarbrjálæði og var til heiðurs Dick Van Dyke sem starði á okkur af veggspjaldi, en engin veit samt hver er. Svo erum við reyndar bæði samkynhneigð og okkur fannst þetta fyndin tilvitnun í það. Við sjáum okkur meira sem einskonar E.T’s – Ekki þennan litla sem var alltaf að reyna að hringja heim, heldur sem skemmtikrafta, samanber EnterTainers. Við mætum ávallt í búningum og með allskonar tilþrif. Við fáum nefnilega svo dásamlega villtar og skemmtilegar hugmyndir saman og ákveðum í æsingi og með helling af handapati hvað við viljum vera í hvert sinn. Við förum að sjálfsögðu eftir óskum hvers og eins sem ræður okkur í gleðskap sinn. Getum til dæmis auðveldlega verið í stíl við tilefnið, sé það brúðkaup og við hvít og saklaus með sumarilm nú eða til dæmis í takt við veggfóður á veitingastað, rautt, lokkandi og soldið seiðandi. Allt í boði. Þegar við spilum á klúbbum þá erum við svolítið brjáluð og hoppum út á gólfið með gestunum, klædd sem eldgamlar konur með hrukkur niður á tær eða kannski sem fnæsandi vampírur með blóðtaumana drjúpandi úr munnvikunum.
Kolbrún : Hvað eruð þið helst að spila og takið þið almennt við óskalögum?
D&D : Stuð, og stemning er alltaf aðalmálið hjá okkur og galdurinn er að kunna að lesa í fólkið á gólfinu og skapa gleðina eftir því . Við spilum tónlist sem fær okkur öllum til að líða vel saman, hvort sem það eru Bítlanir, Abba, Madonna eða Lady Gaga. Svo lengi sem við fáum fólk á gólfið þá erum við sátt.
Hmmm…óskalögin já…. Við getum auðvitað ekki spilað sama óskalagið oft sama kvöldið, fyrir einhvern sem á afmæli til dæmis og vill alltaf heyra uppáhaldslagið sitt í hvert sinn sem hann man eftir því. Við erum heldur ekki með youtube-partý, það á betur við bara í heimahúsi. Svo er ekki svalt að heyra hrópað „Spiliði eitthvað geðveikt skemmtilegt lag, ég lofa að allir dansa!“ Því við spilum hvort sem er bara geðveikt skemmtileg lög því við elskum að dansa og hlusta á tónlist! Og þið verðið ekki vonsvikin af því að hafa okkur við stjórnvölinn á dæmalausa dansiballinu ykkar!
Ef þið viljið fá Dj Dick&Dyke í brúðkaupið – veisluna – afmælið, nú eða bara á skemmtistaðinn, þá endilega sendið þeim línu í gegnum Facebook-síðuna þeirra.