Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Geimstöðin Ísland

$
0
0

Fjölmiðlar heimsins eru ekki síður hissa en Íslendingar á framferði forsætisráðherrans og stöðu mála í ríkisstjórn landsins. The Guardian telur enn (6. mars e.h.) að Sigmundur hafi sagt af sér embætti – eða að minnsta kosti „stigið til hliðar“. Hann er að mati blaðsins fyrsta meiriháttar fórnarlamb lekamálsins:

Screen Shot 2016-04-06 at 15.19.37

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, has become the first major casualty of the Panama Papers, stepping aside from his office amid mounting public outrage that his family had sheltered money offshore.

Screen Shot 2016-04-06 at 15.18.56

The Independent er á öðru máli og virðist taka mark á fréttatilkynningum úr forsætisráðuneytinu:

On Tuesday – two days after the papers were leaked – it was initially thought the Prime Minister had resigned. But this was later contradicted by a statement from his press secretary.

The statement said Mr Gunnlaugsson had suggested that the vice-chairman of the Progressive Party should take over the office of Prime Minister for “an unspecified amount of time”.

Frakkar skemmta sér konunglega yfir óhefðbundinni nálgun Sigmundar Davíðs á stjórnmál og segja hann nú freista þess að halda völdum bak við tjöldin. Le Monde kallar síðasta útspil forsætisráðherrans „pólitískt högg undir beltisstað fremur en auðmjúka afsökunarbeiðni“ (“Cela ressemble davantage à une ultime manœuvre de basse politique qu’à un véritable acte de contrition”).

Screen Shot 2016-04-06 at 11.06.12

Frægð Sigmundar nær alla leið til Úganda, þar sem Daily Monitor kallar Sigmund stærsta fórnarlambið til þessa en varast fullyrðingar um hvort hann sé forsætisráðherra eða ekki. SVT í Svíþjóð og Süddeutsche Zeitung lýsa ástandinu einfaldlega sem „pólitískri ringulreið”.

Screen Shot 2016-04-06 at 11.07.52

El País segir að Íslendingar vilji blóð og Píratar renni á lyktina.

12970573_10153687508933978_1412749591_o.png

Fyrrum formaður Geðhjálpar leggur til að forsætisráðherra verði sviptur sjálfræði og lagður inn á stofnun.

Screen Shot 2016-04-06 at 15.15.07

 

Að sögn forsætisráðherra hyggur eiginkona hans ekki á geimferð á næstunni þrátt fyrir að breska pressan haldi öðru fram.

12952990_10153687524093978_902485800_o

Reyndar hefur komið á daginn að það rétta í málinu er að það var Dorrit vildi fara með Branson út í geim!

Screen Shot 2016-04-06 at 15.56.00

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283