Árni Páll Árnason mælti fyrir vantrausti stjórnarandstöðunnar á nýrri ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar.
Hér er ræða Árna Páls á Alþingi þann 8. apríl 2016 í heild sinni:
„Ég er hér kominn til að mæla fyrir vantrausti á ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar. Það er óvenjulegt að mælt sé fyrir vantrausti á ríkisstjórn á fyrsta starfsdegi hennar og kannski einsdæmi. En við lifum einstaka tíma.
Vantraustið byggir á þeim alvarlega vanda sem upp er kominn í stjórnmálunum og okkur er öllum kunnur.
Aflandsfélög eru bara til í þeim tilgangi að leyna eignarhaldi eða forðast skattheimtu. Um það eru ríkisskattstjóri og allir sérfræðingar sammála og formaður SA tók sérstaklega undir það í tímabærri fordæmingu á skattaskjólum á ársfundi samtakanna í gær. Ef menn halda fé í skattaskjóli eru þeir að taka fé úr vinnu hér á landi og koma sér undan nauðsynlegu gagnsæi. Það fé skapar þá ekki hér störf og verðmæti og stendur ekki undir brýnum velferðarverkefnum eins og endurreisn Landspítalans. Við höfum í glímunni við eftirleik hrunsins óskað sérstaklega eftir að þeir sem eigi eignir í útlöndum komi með þær heim, til að styðja við endurreisn Íslands.
Vegna alls þessa eru eignarhald og viðskipti í skattaskjólsfélagi ósamrýmanleg stjórnmálaþátttöku. Þess vegna er skipan ríkisstjórnarinnar í dag óásættanleg.
Þjóðin varð fyrir áfalli þegar við sáum Kastljósþátt síðasta sunnudag. Og það var ekkert venjulegt áfall: Ég held að við höfum upplifað sorg með þeim hætti sem ekki hefur gerst frá hruni. Skömm okkar var næstum því áþreifanleg. Þessar tilfinningar urðu þeim mun sterkari vegna þess að Ísland og íslenskir ráðamenn voru til umfjöllunar á alþjóðlegum vettvangi á sama hátt og samkvæmt sömu viðmiðum og ráðamenn annarra landa.
Íslenskir fjölmiðlar fengu stuðning af samstarfi við erlenda miðla og það samstarf jók trúverðugleika fréttanna í okkar augum. Ríkisútvarpið, sem glímt hefur við linnulausar ofsóknir ríkisstjórnarinnar allt þetta kjörtímabil, fékk uppreist æru.
Panamaskjölin eru ekki eitthvað hefðbundið íslenskt klúður, þar sem ráðamenn þrasa við gagnrýnendur um efnisatriði mála, ásaka fjölmiðla um ofsóknir, túlka staðreyndir í þessa átt eða aðra eða halda því fram að allt annað eigi að eiga við um þá en alla aðra. Í þetta sinn erum við öll í beinni og það er engin leið að fela sig undan kastljósi heimsins. Engin leið að reyna að halda því fram að önnur viðmið gildi hér en í öðrum löndum.
En þessi tilfinning sorgar og skammar gat af sér samstöðu og von. Strax á sunnudagskvöldið stóðu leikhúsgestir í Borgarleikhúsinu á fætur og sungu þjóðsönginn fullum hálsi. Ekki til að berja sér á brjóst í þjóðernisrembingi, heldur til að minna sig á að Ísland tilheyrir þeim.
Og þessi sami andi sveif yfir vötnum í mótmælunum hér á Austurvelli á mánudag, sem eiga sér enga hliðstæðu í Íslandssögunni. Ekki bara voru þau fjölmennari en dæmi eru um frá hruni, heldur voru þau líka friðsæl og kærleiksrík. Þar voru ekki bara kjósendur stjórnarandstöðunnar: Maður skynjaði að þarna væri saman kominn þverskurður þjóðarinnar.
Kjósendur allra flokka, fólk með ólíkar lífsskoðanir, sumir betur stæðir og aðrir ver. Það sem sameinaði alla var sú krafa að hlustað yrði á ákall þjóðarinnar um siðbót í stjórnmálum og sú von að það væri – þrátt fyrir allt – mögulegt að ná henni fram.
Þetta minnti mig á dagana eftir hrun: Þegar ókunnugt fólk úti á götu með áhyggjuhrukkur á enni lagði lykkju á leið sína til að óska óbreyttum stjórnarþingmanni alls góðs.
Þegar fólk batt enn von við stjórnmálin.
Sú von sem síðan hefur horfið. Á einhverjum tímapunkti, sem erfitt er að ákvarða, fékk fólk skömm á allri pólitík og í skugga þeirrar skammar stöndum við í þessum sal enn þann dag í dag. Okkur hefur ekki tekist að endurvekja trúnaðinn við fólkið sem einu sinni lagði lykkju á leið sína til að hvetja og styðja. Leiðin til þess að endurvekja þann trúnað hlýtur að felast í því að tala af alvöru um raunveruleg áhyggjuefni fólks og segja ávallt satt.
Reynsla síðustu missera færir okkur heim sanninn um mikilvægi þess að breyta í grundvallaratriðum efnahagslegum leikreglum landsins. Um áratugaskeið hefur íslenskt efnahagslíf einkennst af því að vel tengdir viðskiptamenn hafa auðgast vegna þess að stjórnmálamenn hafa tryggt þeim aðgang að takmarkaðri aðstöðu eða ríkiseignum.
Í skjóli þeirrar skekkju hefur vaxið og dafnað sérstök tegund kapítalista – þeirra sem nærast á annarra manna fé og leggja meiri áherslu á taumlausan arð í eigin vasa en raunverulega sköpun verðmæta sem nýtast samfélaginu öllu. Það er þessi tegund sem flykktist í skattaskjól til að forðast að leggja að mörkum eftir efnum.
Á síðustu misserum hafa Borgunarhneykslið og óheftar arðgreiðslur tryggingafélaga á kostnað almennings sýnt að sumir hafa ekkert lært – og því miður engu gleymt. Þessu verður nú að linna.
Hæstvirtur forseti.
Ég ætlaði að flytja hér hefðbundna framsöguræðu með vantrausti: Tala um ríkisstjórn sem hefur brugðist, nýja útgáfu hennar sem er andvana fædd og þorir ekki í kosningar. Eins og allir stjórnarandstöðuleiðtogar á öllum tímum hafa gert við slíkar aðstæður.
En ég get ekki meir og held að tímarnir krefjist af okkur nýrrar alvöru. Eftir harkaleg orðaskipti okkar fjármálaráðherra hér í gær fór ég heim og hugsaði.
Ég skil þau harkalegu orð sem fjármálaráðherra lét falla í minn garð í málsvörn sinni hér í gær. Ég skil, vegna þess að ég hef sjálfur setið á þessum ráðherrabekk og að mér hefur líka verið sótt. Ég hef setið og heyrt þúsundir mótmæla stefnu minni og þeirrar ríkisstjórnar sem ég var hluti af. Og ég hef varist af hörku og verið algerlega sannfærður um að ég vissi best og að leiðin sem við hefðum valið væri sú eina rétta. Allir hlytu á endanum að sjá að ég hefði rétt fyrir mér. En ég get ekki horft framhjá því að afleiðingin af þeirri afstöðu varð stærsta pólitíska tap Íslandssögunnar.
Vantraust á nýja ríkisstjórn er hér til umræðu. Fyrir því eru efnisrök. En fyrir liggur samþykkt vantraust þjóðarinnar á íslenska pólitík. Það getur enginn neitað því. Fjármálaráðherra sagði að stjórnarandstaðan væri „líka í rusli“ og við höfum vissulega öll beðið gríðarlegt tjón af stjórnmálum sem gera lítið úr fólki, afneita staðreyndum, upphefja persónupólitík og breyta allri alvöru í þras og garg.
Um allan heim er fólk að snúa baki við stjórnmálum sem það upplifir að einkennist af alvöruleysi og eiginhagsmunum. Við erum á sama báti. Við getum ekki haldið áfram bardaganum á vettvangi stjórnmálanna á þann veg að öllu góðu fólki ofbjóði það sem það heyrir og sér. Við verðum saman að bjarga stjórnmálunum, til þess að verða að sem mestu gagni.
Því hvað sameinar okkur hér í þessum sal? Löngunin að gera betur fyrir íslenska þjóð. Við skulum rækta hana saman. Það er hægt. Fjöldi fólks í samfélaginu hefur talað fyrir nýju samtali síðustu daga – ég læt duga að nefna háttvirtan þingmann Unni Brá Konráðsdóttur og hæstvirtan fyrrverandi ráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sem báðar lögðu gott til í viðtölum í gærkvöldi og buðu upp á nýjar leiðir. Það þarf nefnilega nýtt upphaf. Þingmenn meirihlutans geta kosið að lesa í þessa vantrauststillögu aðför að ykkur. Í henni felst hins vegar útrétt hönd um betri samskipti á nýjum forsendum.
Með ríkisstjórnarskiptunum hafið þið sjálf viðurkennt að umboð ykkar er brostið, en ekki gengið nógu langt til að ljúka málinu. Við skulum ekki halda áfram átökum átakanna vegna. Þau er óhjákvæmileg afleiðing, ef haldið verður áfram á sömu braut.
Í boði er hins vegar samtal um lausnir sem varðað geta veginn fram á við, tryggt framgang brýnna mála og kosningar svo fljótt sem verða má og ábyrgt getur talist.
Á myrkum haustdögum fyrir nærri átta árum stóðum við mörg hér í þessum sal frammi fyrir því að efnahagslegt sjálfstæði Íslands var í húfi. Hvorki meira né minna. Almenningur gæti búist við því að viðbragð við þeirri stöðu væri þessari stofnun algerlega ofviða. En, þrátt fyrir allt sem við segjum alla daga hvert um annað í þessum sal, þá tókst okkur það. Þessi átta ár hafa einkennst af tvennu: Skynsamlegum ákvörðunum um það sem mest hefur skipt, en hatursfullri og niðurrífandi stjórnmálaumræðu um allt hitt.
Ríkisstjórnir, allt frá hruni, hafa tekið grundvallarákvarðanir sem hafa bjargað Íslandi.
Neyðarlögin, efnahagsáætlunin með AGS, löggjöf um að fella þrotabúin undir höft og samningarnir við kröfuhafana. Allir stjórnmálaflokkar hafa komið að einhverjum þessara ákvarðana og sumir að öllum. Allt hefur þetta skilað okkur árangri sem vekur eftirtekt um allan heim.
Hugsið ykkur: Okkur tókst að bjarga efnahagslegu sjálfstæði landsins á meðan við rifumst.
Eigum við að leyfa okkur að láta okkur dreyma um hvað við gætum gert ef við ynnum saman?“