Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

STÓRMÓTMÆLI í dag á Austurvelli klukkan 14:00

$
0
0

Mótmælt verður í dag laugardaginn 9. apríl kl. 14:00 á Austurvelli.

Yfirskrift mótmælanna er Kosningar strax! – Ríkisstjórnina burt!

Dagskrá mótmælanna er fjölbreytt og margir listamenn munu koma fram:

Quarashi / Ensími / Dr. Spock / Kiriyama Family leiða saman hesta sína og spila vel valin Rage Against the Machine lög.

Ghostdigital

Hemúllinn

Ræðumenn verða Andri Snær Magnason og Illugi Jökulsson.

Fundarstjóri verður Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir.

Jæja-hópurinn mun á mótmælunum tilkynna um fyrirhugaðar áframhaldandi mótmælaaðgerðir. Aðgerðirnar munu beinast gegn þrásetu ríkisstjórnar Íslands sem rúin er öllu trausti, uppfyllir ekki kröfur almennings um bætt vinnubrögð á Alþingi og axlar ekki ábyrgð á þeim alvarlega siðferðislega bresti, sem og, trúnaðarbresti sem þessi ríkisstjórn hefur valdið þjóðinni.

Þetta verður stórt!

This one is going to be big. #kosningarstrax #tortóla #panamapapers #jæja #iceland #electionnow


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283