Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fjárlög næsta árs verða kosningamál sjálfstæðisflokksins

$
0
0

Framkvæmdastjóri sjálfstæðisflokksins sagði miðstjórnarfund flokksins í gær vera undirbúningi fyrir kosningabaráttuna sem framundan er. Gott og vel.

Bjarni Benediktsson formaður flokksins sagði eftir fundinn að flokkurinn vilji ljúka ákveðnum málum fyrir kosningar og nefnir í því sambandi fjárlög næsta árs.

„Það er ekki hægt að úti­loka að rík­is­stjórn­in komi með fjár­laga­frum­varp til kynn­inga í haust og síðan yrði gengið til kosn­inga skömmu síðar.“

Þá vitum við það. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera fjárlög næsta árs að kosningamáli.

Trausti rúinn fjármálaráðherra að leggja fram fjárlög fyrir hönd flokksins þar sem útgjöld ríkisins verða kosningamál. Það á að reyna kaupa sig til valda með skattfé almennings. Aftur.

Þetta verður að stöðva.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283