Bjarki Már Ólafsson fótboltaþjálfari skrifaði á Facebook í dag og leyfði okkur að deila þessum áríðandi skilaboðum:
„Í dag átti ég að fara í hjartaaðgerð, nánar tiltekið hjartalokuskipti. Ég hef beðið eftir því að komast í þessa aðgerð frá því í október 2013 þegar ég fékk þær fréttir að ég þyrfi að leggja fótboltaskóna á hilluna þar sem að lekinn frá hjartalokunum var kominn yfir velsæmismörk.
Ég hef verið á biðlista hjá Landspítalanum og nokkurn tíma og nú fyrir viku síðan fékk ég loksins kallið. „Aðgerðin mun eiga sér stað mánudaginn 11. apríl klukkan 07:00.“ Síðasta vika hefur verið erfið. Rannsóknir og blóðprufur, viðtöl og undirbúningur, þá aðallega andlegur undirbúningur.
Tilfiningarnar hafa verið miklar, eftirvænting í bland við kvíða, og hefur síðasta vika verið mikill rússíbani. Andvökunætur, skapsveiflur og kvíði hafa verið einkennandi og haft áhrif á mitt daglega líf. Helgin fór síðan í það að stilla mig andlega inn á þetta verkefni, það stærsta sem ég hef tekist á við hingað til.
Í dag mætti ég á Landspítala Íslands klukkan 06:55. Ég skráði mig inn á deild 13-D, Dagdeild skurðlækninga, fékk föt merkt „Þvottahúsi Spítalanna“ og fékk minn fyrsta skammt af verkjalyfjum. Tíminn leið hægt og biðin eftir kallinu lengdist. Klukkan var orðin 08:30 og enn beið ég eftir því að komast í þessa viðamiklu aðgerð.
Aðgerð frestað
Klukkan 09:00 var mér tilkynnt að ekkert pláss væri á gjörgæsludeildinni og að tækjabúnaðurinn væri af skornum skammti. „Aðgerðinni er því frestað“, var mér tilkynnt áður en ég var sendur heim.
Ég get rétt ímyndað mér hversu margir aðrir, verr settir en ég, hafa lent í þessu.
Ég veit ekki hvenær ég fæ að fara í þessa aðgerð. Ég veit ekki hvernig mér mun líða fram að aðgerðinni. Ég veit hins vegar að þetta er ekki í lagi. Ég veit að það er hægt að gera eitthvað í þessum hlutum. Ég veit að ég vil ekki að þetta komi fyrir aðra í náinni framtíð.
Að því sögðu vil ég grátbiðja ykkur öll um það að skrifa undir undirskriftarlistann sem að Kári Stefánsson setti í gang. Við þurfum að endurreisa heilbrigðiskerfið okkar. Það er ekkert flóknara en það.
Ég vil þó þakka öllum þeim læknum og hjúkrunarfræðingum sem sinntu starfi sínu með mikilli fagmennsku. Það er ekkert við þau að sakast.
Í dag átti ég að fara í hjartaaðgerð, nánar tiltekið hjartalokuskipti. Ég hef beðið eftir því að komast í þessa aðgerð…
Posted by Bjarki Már Ólafsson on Monday, 11 April 2016