Fréttatilkynning frá Samfylkingunni:
Núverandi ríkisstjórn hefur heimildir til þess selja eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum og í ljósi atburða síðustu vikna er eðlilegt að endurskoða þær heimildir.
Þess vegna leggur þingflokkur Samfylkingarinnar fram frumvarp um tímabundið bann við sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Þessir eignarhlutar ríkisins eru gríðarlega verðmætir og miklu máli skiptir að stjórnvöld njóti fullkomins traust ef þau ákveða að selja hlutina. Núverandi ríkisstjórn nýtur ekki trausts og ljóst að hún muni aðeins sitja í nokkra mánuði er ekki eðlilegt að fjármála- og efnahagsráðherra hafi heimild að selja eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Í þessu sambandi verður einnig að hafa í huga að sala á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum getur verið stefnumarkandi ákvörðun fyrir fjármálakerfið í heild sinni.
Eignarhald ríkisins á nánast öllu fjármálakerfinu gefur möguleika á því nú að endurskoða fjármálakerfið í heild sinni standi til þess pólitískur vilji.
Frumvarp til laga um tímabundið bann við sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum var lagt fram á Alþingi í dag af þingflokki Samfylkingarinnar og er aðgengilegt hér á vef Alþingis::http://www.althingi.is/altext/145/s/1159.html