Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Algerlega ómissandi maður

$
0
0

Um 20 þúsund Íslendingar komu saman snemma í þessum mánuði á Austurvelli.

Þeir komu ekki saman til að hylla gamla valdakerfi yfirstéttar Íslands.

Þeir komu ekki saman til þess að hylla forseta sinn.

Enda er hann hluti af gamla valdakerfinu.

Forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur nú ákveðið að bjóða sig fram til valdasetu fyrir þetta gamla kerfi í fjögur ár í viðbót. Kerfi sem að minnsta kosti tvisvar hefur nú kastað þjóð sinni fram af brúninni.

Hann er, líkt og sitjandi valdaflokkar, hræddur við Pírata og Andra Snæ Magnason.

Ólafur Ragnar vill bara sumar þær breytingar á stjórnarskrá sem þjóðin hefur samþykkt.

Hann vill reka puttana í stjórnarmyndun eftir þingkosningarnar í haust. Hann vill afhenda Sjálfstæðisflokknum, næst stærsta stjórnmálaaflinu eftir þær kosningar, umboð til stjórnarmyndunar.

Á kostnað Pírata.

En hvað gerir Ólafur Ragnar – og hvað verður um hann – ef í ljós kemur að gamla íslenska valdakerfið er rotnara inn að beini en nokkurn óraði fyrir. Að ekki aðeins að oddvitar gömlu valdaflokkanna séu merktir Wintris og Falcon heldur einnig að fjármálaelítan í stuðningsliði flokkanna séu einnig að mylja undir sig á kostnað þjóðarinnar?

Hvað ef dómarar verða einnig uppvísir að braski og launung með sín fjármál? Eða aðrir hátt settir embættismenn á launum hjá þjóðinni?

Ætlar Ólafur Ragnar þá enn á ný að stilla sér upp með gamla rotna valdakerfinu?

Gamla valdakerfið óttast breytingar.

Það gerir Ólafur Ragnar líka.

Þess vegna býður hann sig fram í 24 ár með þeim orðum að þjóðin þurfi einhverja „festu“ í umróti breytinganna.

Íslenska þjóðin er ekki hrædd við breytingar.

Hún þarf breytingar.

Hún þarf breytingar sem Ólafur Ragnar ætlar að vinna gegn.

Það er kannski viðeigandi að segja eins og maðurinn á röltinu: Við höfum nú ómissandi forseta. Við höfum líka ómissandi ríkisstjórn. Það er helst að þjóðin sjálf sé ekki ómissandi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283