Sigurður Ágúst Hreggviðsson skrifar:
Kæra Vigdís Hauksdóttir,
Ég er öryrki, þriggja barna faðir og giftur. Konan er í 50% starfi þar sem hún þarf að líka að sjá um allt sem tengist heimilsstörfunum. Að krefjast þess að hún sé í 100 % starfi meðfram heimilisstörfum væri hreinlega til of mikils mælst af einni manneskju. Börnin hjálpa þó til heima fyrir.
Þó að ég sé öryrki þá þarf ég samt að sjá fyrir börnunum mínum og það er bara ekki neitt ódýrara fyrir mig að eiga börn þó að ég sé öryrki eins og má lesa úr orðum þínum á Alþingi í vetur: „Það kostar að vera í vinnu.“

Skjáskot af ummælum Vigdísar. Eyjan. Desember 2015
Ég lít á það sem fulla vinnu að vera með verki allan sólahringinn alla daga ársins og fá aldrei frí frá þeirri vinnu. Ekkert sumarfrí, jólafrí, páskafrí eins og þú færð.
Ég þarf að kaupa lyf alla mánuði ársins og nú veit ég ekki þína stöðu en sé miðað við laun alþingismanns þá ertu væntanlega ekki á flæðiskeri stödd með peninga og myndir ekki taka eftir „smá“ lyfja og lækniskostnaði.
Þú hefur haldið því fram að það liggi um 80 milljarðar í skattsvikum þar af 9 – 10 milljarðar í bótasvikum!

Skjáskot af ummælum Vigdísar/ Eyjan. Desember 2015
Þessa fjármuni grefurðu ekki upp hjá öryrkjum – því þó þá langaði til að vinna svart þá er bara ekkert um það að ræða þar sem flest okkar – eru bara ekkert fær um að vinna.
Væntanlega eru þessar stjarnfræðilegu upphæðir – skattsvik og undanskot fyrirtækja og einstaklinga sem eru í VINNU (og eiga Tortóla reikninga).
Það er hreinlega orðið ógeðslegt hvað þú talar niður til öryrkja. Held að þú ættir að sjá sóma þinn í því að segja af þér stöðu þinni sem alþingismaður þar sem þú ert ekki að starfa fyrir þjóðina lengur. það væri win-win staða fyrir alla.
Þú og þinn flokkur sem og samstarfsflokkur þinn hafið lítið sem ekkert traust og eina sem þið gerið núna er að ríghalda í völdin því þið getið ekki afborið að missa þau til fólks sem vill í raun vinna að velferð landsmanna allra en ekki bara útvalinna flokksgæðinga, auðmanna og útgerðanna í landinu.