Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Berrassaður á Bessastöðum

$
0
0

Þegar Ólafur Ragnar ákveður að láta undan þrýstingi sinna gömlu fjandmanna í Sjálfstæðis og Framsóknarflokki um að bjóða sig enn og aftur fram til embættis forseta þjóðarinnar er orðið alveg klárt að kerfinu er ógnað.

Ég skrifaði aðra grein um siðrof og viðnám kerfisins fyrr í þessum mánuði, og þetta er tær birtingarmynd á því sem rætt var í þeirri grein. Kerfið með Ólaf Ragnar að gegna hlutverki hins gamla staðnaða kerfisvarðhundi sem er ýtt áfram af gömlum hagsmunum og gömlum valdaklíkum kenndum við Sjálfstæði og Framsókn. Alger öfugyrði Sjálfstæði og Framsókn. Þessir flokkar standa dyggan vörð um helmingaskiptaregluna og það að halda völdum sama hvað það kostar.

Það sem margir lofuðu Ólaf Ragnar fyrir, þegar hann neitaði Sigmundi Davíð um þingrof, má segja að hafi í raun verið mikill óleikur gagnvart þjóðinni og gagnvart lýðræðinu í heild. Ólafur Ragnar, Bjarni Ben og þeir sem berjast við að halda völdum gegn okkur almenningi tala um lýðræði, hin góðu verk, nauðsyn þess að halda áfram og svo framvegis.  En þetta tal er algerlega marklaust þar sem þeir eru í raun ekki að tala um lýðræði, þetta eru frasar sem fjölmiðlar gleypa við, en merkingin á bakvið það er engin, og oft efast ég um að skilningur þessarra manna á lýðræði sé til staðar.

Málið snýst um að halda völdum og nú eru erkióvinir orðnir perluvinir með sameiginlegt markmið að vernda kerfið. Það sem er alvarlegast er ekki hin eðlilega og eðlislæga kerfisvörn og viðnám, heldur sá fjöldi fólks sem styður þetta.

Málið snýst um fólk, almenning og þjóðina. Þegar Ólafur Ragnar stal frá okkur lýðræðinu með því að hafna þingrofi og þar með binda endi á von fólks um kosningar til að þjóðin gæti notað lýðræðið og breytt kerfinu með því að koma valdaklíkunum burt, var hann ekki að vinna fyrir okkur, heldur kerfið.

Þetta var kerfislægt viðnám og hannað til að halda almenningi, breytingum og lýðræðinu niðri.

Staðan er sú að kerfið óttast tvennt, Pírata sem boða breytingar og nýja stjórnarskrá, sem Ólafur Ragnar hefur barist gegn ásamt sínum gömlu óvinum. Eins koma Andra Snæs Magnasonar í umræðuna. Staðan er núna þannig að búið er að ramma inn baráttuna um frelsið og lýræðið þannig að hræðsla við Pírata og Andra Snæ kemur fram í því að kerfið sparkar fast frá sér og allt of stór hluti fólks fylgir með.

Það sem allt of margir átta sig ekki á er sú staðreynd að gamla kerfið er ónýtt og búið að vera, það er í dauðateygjunum, en þá oft berst það sem harðast. Framtíðin er nýja fólkið og nýjar hugmyndir um nýtt kerfi.  Einræðis og konunaglegir tilburðir Ólafs Ragnars eru tímaskekkja og sönnun þess að hann stendur nakinn á túni Bessastaða og það sjá það allir nema hann og hans varðhundar, hvort sem þeir eru hluti almennings sem ver kerfið eða kerfið sem ver sig sjálft.

Sú hugsun sem er í gangi núna er landlæg ævarforn Íslensk hugsun þrælsins sem kastar lofi á kvalara sinn í von um að hann missi ekki það litla sem hann hefur. Þessi þrælslund gerir það að verkum að menn sjá ekki nakta manninn, heldur verður afneitunin alger. Niðurstaðan er sú að kerfið heldur frekar velli.

Þeir sem telja Ólaf Ragnar málsvara sinn í kerfisvörninni átta sig ekki á því að þeir eru ekki framtíðin, frekan en Bjarni Ben, Ólafur Ragnar eða slíkir kerfisvarðhundar. Unga fólkið er framtíðin og það á að fá tækifæri til að velja hvern þann sem það vill fá sem forseta og sem þingmenn.  Píratahræðslan hjá varðhundum kerfisins er að ná sömu hæðum og þegar Svartskeggur Sjóræningi hristi upp í Breska heimsveldinu fyrir einhverjum hundruðum ára.  Elítan skalf á beinunum.

Þó svo að Píratar og Andri Snær hafi ekki verið í neinu samkrulli eða átt einhverjar samræður að mér vitandi, þá eru hugmyndir þeirra beggja eitthvað sem ógnar kerfinu og því bregst það svona við. Forsetinn talar bara um sjálfan sig rétt eins og Bjarni Ben eða Sigmundur Davíð gera. Ekki um þjóðina eða fólkið sem þeir eru svo sannarlega í vinnu fyrir. Ný stjórnarskrá er algert eitur í beinum þessa fólks vegna þess eins að þá missa þeir völdin í hendurnar á fólkinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283