Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Leitar að bréfum langömmu sinnar

$
0
0

Hera Fjord, leikkona og leikskáld, leitar að bréfum langalangömmu sinnar, Kristínar Dahlstedt (Jónsdóttur), sem hugsanlega leynast í fórum fólks.

Hera hefur undanfarið ár unnið að sínu fyrsta leikverki sem byggist á ævi Kristínar sem var veitingakona fædd árið 1876 í Dýrafirði á Vestfjörðum og sem fór mikinn í veitingarekstri í Reykjavík fyrri hluta 20. aldar.

Kristín var fátæk stúlka úr Dýrafirði sem fór ung til Danmerkur með kútternum Daníu en átti þá að baki ástarævintýri með skáldinu frá Þröm – Magnúsi Hjaltasyni, sem Halldór Laxness gerði ódauðlegan sem Ólaf Kárason Ljósvíking í skáldsögunni Heimsljósi. Hún sleit þó sambandinu þegar Magnús treysti sér ekki til að leggja út fyrir trúlofunarhringunum.

Kristín var 8 ár í Danmörku þar sem hún lærði margt um hótel- og veitingarekstur – reynslunni ríkari kom hún síðan aftur til Íslands árið 1905 og opnaði fljótlega sinn eigin veitingastað að Laugavegi 68 og rak hún veitinga- og gistiheimili víðs vegar um bæinn á árunum 1906–1946, oftast undir nafninu Fjallkonan.

Kristín við Fjallkonuna

Kristín við Fjallkonuna

Kristín var glæsileg og kjörkuð kona, eldaði stundum grátt silfur við embættismenn, sér í lagi lögregluna, og þótti hún frjálsleg í fasi en hún eignaðist þrjú börn með þremur mönnum og giftist ekki fyrr en seint á ævinni.

Leikrit Heru er nánast fullunnið en hún hefur í þó nokkurn tíma leitað að bréfum Kristínar, annaðhvort skrifuð til hennar eða frá henni, til að hafa með í verkinu. Kristín lenti í því tvisvar á lífsleiðinni að allar hennar eigur fórust í bruna og því vildi Hera athuga hvort bréf frá henni gætu hafa varðveist á öðrum heimilum landsins.

Því biðlar hún til fólks, ef einhver veit af bréfum Kristínar eða öðrum upplýsingum um hana, að hafa endilega samband. Tölvupóstur hennar er hera@herafjord.com og er hægt að nálgast hana þar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283