Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

“Við fundum brjóst sem ekki verða ritskoðuð: Brjóstin á Henry.“

$
0
0

Argentísk brjóstakrabbameinssamtök hafa birt myndband sem kennir konum að skoða brjóst sín gaumgæfilega. Kennslumyndbandið er allsérstakt og hefur á örfáum dögum vakið gríðarlega athygli um allan heim.

Screen Shot 2016-04-30 at 09.45.21

Samfélagsmiðlar á borð við Facebook og Instagram hafa eins og vitað er bannað að birta myndir af nöktum kvenbrjóstum og alls ekki mega geirvörturnar sjást – þannig að samtökin sem kallast Movimiento Ayuda Cáncer de Mama (MACMA) leystu málið á einfaldan hátt án þess að fara á svig við þessi fáránlegu lög með því að kenna sjálfsleitina – á karlmannsbrjóstum.

“Við fundum brjóst sem ekki verða ritskoðuð: Brjóstin á Henry.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283