Það er heldur betur kátt í konungshöllinni sænsku. Kóngsi sjálfur er hvorki meira né minna en sjötugur í dag. Hann hefur verið að þjófstarta afmælinu á hverjum degi alla vikuna en í kvöld verður aðalveislan og öllum tjöldunum tjaldað.
Í konungsríkinu Svíþjóð hefur jafnaðarmennska lengi verið í hávegum höfð og áhersla lögð á gildi hvers einstaklings svo enginn þurfi að skammast sín fyrir uppruna sinn. Það sést vel á kóngsa karlinum og ekki síst á börnunum hans sem hafa lært að bera djásn sín með stolti og munu væntanlega gera það í veislu kvöldsins. Eins má vænta þess að eðalborið kóngafólk sem flykkist til Stokkhólms héðan og þaðan úr Evrópu skarti sínu fínasta.
Svíakóngsi hefur aldrei haft neitt á móti fólki sem ekki er konungborið og því kemur það engum á óvart að á gestalista kvöldsins er einnig fulltrúi íslenskrar alþýðu. Íslendingar hafa aldrei verið neinir jafnaðarmenn, heldur meira svona svolitlir sjálfstæðisbúrar eins og Bjartur í Sumarhúsum og hafa stundum átt erfitt með að senda skikkanlegt fólk í veislur hjá konungbornu fólki, enda hefur fátt fólk á Íslandi aðgang að skarti sem þykir hæfa við slík tilefni.
Upp á síðkastið hefur þó tekist að leysa þennan vanda á undraverðan hátt. Þrátt fyrir miklar annir við að stýra aldagömlu fjölskyldufyrirtæki hefur breskur demantasali góðfúslega boðist til þess að koma fram fyrir hönd íslenskrar alþýðu við ýmsar athafnir erlendis. Þá hefur hvorki skort skartið né skrúðið svo íslenskir bændur, sjómenn og prjónakonur hafa aldrei þurft að skammast sín fyrir neitt.
Það er 30. apríl í dag, Valborgarmessa. Víða um lönd fagnar fólk þeim þáttskilum að vetur mætir vori og efnir í táknrænar brennur með kvöldinu, kveikir í rusli liðins tíma. Íslendingar kunna ekkert inn á þessa þjóðtrú og samkvæmt þeirra veruleika skiptir öllu meira máli að kunna sig í konunglegu boði. Í kvöld verður því breski demantasalinn fulltrúi íslenskrar alþýðu þegar hátíðarsamkoman syngur afmælissönginn fyrir Svíakóngsa. Síðan verður glösum lyft og dansað fram á nótt.
Enn hefur ekki verið upplýst hvaða gjöf fulltrúi íslenskrar alþýðu hyggst færa Svíakóngsa á afmælisdeginum, en hinn alþýðlegi fylgdarmaður breska demantasalans ku vera lunkinn við fjölmiðla og gæti hér komið sterkur inn. Óskandi væri að hann birtist á stórum skjá við hátíðarhöld verkalýðsins á morgun, hinn 1. maí, til að skýra frá veislunni og færa íslenskri alþýðu og þjóðinni allri sérstakar þakkir frá kóngsa fyrir gjöfina. Það myndi setja virkilegan hátíðarblæ á dagskrána.
Höfum samt ekki áhyggjur af því hvort fylgdarmanni breska demantasalans tekst að ná til alþýðunnar á morgun. Í dag skulum við fagna afmæli Svíakóngsa. Húrra, húrra, húrra. Í kvöld verður svo dansað og við megum vita að hvert spor sem breski demantasalinn stígur í konungshöllinni verður sómaspor fyrir íslenska menningu og íslenska tungu og umfram allt íslenska alþýðu.