Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra og þingmaður VG, hyggur ekki á áframhaldandi þingsetu að loknu þessu kjörtímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Ögmundar rétt í þessu. Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar hefur boðað kosningar í haust eða lok árs en engin dagsetning er komin fyrir næstu kosningar.
„Ég stend að sjálfsögðu mína vakt til loka kjörtímabilsins, hvenær sem nú ákveðið verður að láta því ljúka. Þá taka við ný verkefni,“ skrifar Ögmundur. „Ég ráðgeri ekki að hætta að lifa lífinu þótt ég hætti á Alþingi. En öðruvísi líf verður það og önnur verkefni, vonandi ekki síður gefandi.“
Ögmundur hefur verið alþingismaður síðan 1995 þegar hann var kjörinn á þing fyrir Alþýðubandalagið og seinna Vinstri græn. Hann var heilbrigðisráðherra árið 2009, dómsmála- og mannréttindaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2010 og innanríkisráðherra 2011–2013.