Þegar við fluttum til Noregs voru margir sem sögðu mér að Noregur væri SVAKALEGA dýrt land og sögðu mér svo frá ofurháu verði á hálfs lítra kóki og svo sígarettupakka. Eitthvað sem mér gæti ekki verið meira sama um þar sem ég hvorki reyki né drekk kók.
En það er samt alveg satt, hálfs lítra kók er sjúklega dýrt, sígarettur eru það líka og mér er enn þá alveg sama, bara gott að sígarettur og kók er dýrt, þetta er nefnilega líka dýrt fyrir heilbrigðiskerfið þegar til langs tíma er litið. Reykingar eru hættulegar heilsunni muniði og kosta marga lífið.
En allavega þá tel ég matarkostnað okkar fjölskyldunnar hafa minnkað ef eitthvað er síðan við fluttum og því ætla ég að setja inn hér algengar vörur sem við kaupum og verðið á þeim, ég nota svo reiknivélina inn á landsbankinn.is til að breyta norskum krónum yfir í íslenskar.
Ef þessar upphæðir eru svo settar sem prósenta af tímalaununum mannsins míns þá er þetta náttúrlega hálfgert djók miðað við hvernig þetta var á Íslandi. En allavega, hér koma nokkur verðdæmi:
Heill, ferskur (ófrosinn) kjúklingur: 38 kr/kg = 717 kr.
500 g ferskur (ófrosinn) lax án roðs og skorinn í fjóra 125 g bita: 53 kr. = 1000 kr.
1 kg af frosnum þorsk í bitum, roð og beinlaus: 50 kr. = 943 kr.
680 g af ferskum (ófrosnum) kjúklingabringum, yfirleitt 4 bringur í pakka: 69 kr. = 1302 kr.
Heill brauðhleifur (sem við setjum sjálf í brauðvél sem sker, frekar gróft og nýbakað): 24 kr. = 453 kr.
1,75 l mjólk: 25 kr. = 472 kr.
500 g vínber: 29 kr. = 547 kr.
400 g svínahakk ferskt og ófrosið: 18 kr. = 339 kr.
400gr nautahakk fersk og ófrosið: 38kr = 717kr
400gr kjúklingahakk ferskt og ófrosið: 25kr = 472kr
1 kg af Norwegian osti (sá ostur sem við kaupum alltaf): 85kr/kg = 1604 kr.
Ég kíki kannski á fleiri vöruflokka síðar en ég vildi setja þetta inn til gamans og svo að þið gætuð gert samanburð.
Alltaf fengum við að heyra um hinn rándýra Noreg og það er bara smá kaldhæðni fólgin í því að það kostaði mig miklu meira að kaupa inn á Þórshöfn á Langanesi í fyrrasumar, þegar ég var í heimsókn hjá móður minni, heldur en það kostar mig að kaupa inn hér í Noregi
-Freyja