Hormónar hafa áhrif á líðan okkar og margar konur finna fyrir fyrirtíðaspennu í hverjum mánuði. Fyrirtíðaspenna kemur fram á misjafnan hátt en skapsveiflur eru algengur fylgifiskur. Sumar konur finna fyrir því að það er stuttur í þeim þráðurinn, bókstaflega allt fer í taugarnar á þeim og einföldustu hlutir í samskiptum við maka og börn verða erfiðari en ella.
Sumar þjást af síþreytu og eiga í mesta basli með að halda sér vakandi. Það er ómögulegt að vera kona á besta aldri og vera með skerta orku. En hvað er til ráða?
Enn aðrar konur finna fyrir viðkvæmni og eru jafnvel grátgjarnar þessa daga áður en blæðingar hefjast. Ertu grátandi yfir auglýsingum sjónvarpsins sem öllu jafna hafa engin áhrif á þig? Þá kannski þjáistu af fyrirtíðaspennu.
Blæðingum fylgja verkir hjá mörgum konum og margar vilja helst bara liggja fyrir í einn dag meðan það versta gengur yfir. Maður á að taka því rólega ef blæðingar hafa mikil áhrif á líkamlega heilsu. Vertu góð við sjálfa þig, láttu fara vel um þig, passaðu að þér sé ekki kalt og heitar sturtur geta gert kraftaverk. Fjárfestu í hitapoka, góður hitapoki verður besti vinur þinn meðan tíðaverkirnir eru verstir. Sumum finnst gott að stunda létta líkamsrækt meðan á blæðingum stendur en aðrar vilja helst bara kúra og bíða af sér mestu leiðindin.
Breytingaskeiðinu fylgja hormónabreytingar sem stundum valda svefntruflunum, svitakófum, vanlíðan og sleni. Stundum er það mesta basl að vera kona, en hvað er til ráða? Mörg lyf og náttúruleg efni eru á markaðinum til að hjálpa konum til að koma jafnvægi á hormónastarfsemina og eitt þeirra er náttúruefnið Femmenessence. Kannist þið við það eða hafið þið af því reynslu?
Femmenessence er ekki hórmónalyf heldur er uppistaðan jurtin Maca eða öllu heldur rót hennar. Macarótin er talin til þeirra fæðutegunda sem flokkast sem ofurfæða.
Rótin vex í Andesfjöllunum og hefur verið sýnt fram á að regluleg inntaka Maca rótarinnar styður framleiðslu líkamans á hormónum og á að stuðla að bættu jafnvægi í hormónabúskapnum. Femmenessence eru glútenlausar vörur og henta því grænmetisætum. Femmenessence er til fyrir konur á öllum aldursskeiðum en vörurnar eru:
Maca Harmony sem er ætlað konum á barneignaraldri.
Maca Life er fyrir konur sem eru að nálgast breytingaskeiðið eða finna fyrir einkennum en hafa haft blæðingar síðustu 12 mánuði.
Maca Pause fyrir konur sem hafa ekki haft blæðingar síðustu 12 mánuði og /eða hafa farið í aðgerðir s.s. eins og eggjastokkabrottnám.
Við hjá Kvennablaðinu óskum eftir samstarfi við konur sem væru fáanlegar til að prófa þessar vörur því að allar auglýsingar heimsins jafnast ekki á við reynslusögur þeirra sem reyna vöruna á eigin skinni. Við óskum eftir konum á öllum aldursskeiðum til samstarfs og endilega kynnið ykkur meira um Femmenessence á Facebooksíðu þeirra. Þar eru margar konur sem deila jákvæðri reynslu af vörunum svo það er ekki úr vegi að prófa vörurnar og sjá hvort þær bæta líðanina. Áhugasamar konur sem vilja prófa vörurnar og eru til í að skrifa um reynslu sína endilega sendi línu til okkar á kvennabladid@kvennabladid.is. Eins viljum við gjarnan heyra frá konum sem hafa reynslu af vörunum og eru til í að deila reynslu sinni með kynsystrum sínum.