Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Reiðir strákar

$
0
0

Anton Helgi Jónsson skrifar.

anton helgi jonsson

Mér fannst ónotalegt að hlusta á hádegisfréttatíma Ríkisútvarpsins. Í tveimur fréttum var minnst á unglingsstráka sem börðu fullorðna menn fyrir að hafa áreitt þá kynferðislega í æsku.

Það rifjaðist upp fyrir mér dimmt vetrarkvöld sem ég átti með tveimur félögum mínum þegar ég var sextán eða sautján ára. Við vorum að sulla í víni heima hjá öðrum þeirra og foreldrar fjarri. Þetta var ósköp rólegt kvöld með gítargutli en á einhverjum tímapunkti fóru þeir félagar mínir að minnast á kall sem bjó uppi á Laugavegi. Þeir hermdu eftir honum, gerðu gys að honum, sögðu að hann væri ógeðslegur kynvillingur sem káfaði á strákum. Áður en ég vissi af voru þeir komnir í einhvern undarlegan ham og sögðu að við þyrftum að gera eitthvað, fara og tala við kallhelvítið, berja hann.

Ég fór ekki með þeim þegar þeir strunsuðu af stað. Enginn okkar var neinn slagsmálahundur og ég skildi ekki hvað var í gangi, mér þótti skrýtið hvað þeir urðu reiðir. Þeir sögðu ekkert berum orðum. Hvorki þetta kvöld né síðar.

Löngu seinna fór mig að gruna ýmislegt en ég spurði aldrei upphátt og hef aldrei sagt frá þessu kvöldi áður. Þegar ég hlustaði á hádegisfréttirnar viðurkenndi ég fyrir sjálfum mér að ég hef oft hugsað sem svo að venjulegir strákar taki sig varla til upp úr þurru og fari að refsa einhverjum kalli.

Það býr eitthvað meira að baki þegar börn fyllast heilagri reiði og ætla sér að taka réttlætið í eigin hendur. Eða hvað? Þeim gekk svona upp og ofan að höndla líf sitt, félögum mínum en hvorugur var neinn sérstakur ofstopamaður gagnvart öðrum en sjálfum sér.

Þeir kusu sér örlög sjálfir, hengdu sig báðir en með nokkurra ára millibili. Án þess að tala. Enginn vissi hvort það var eitt sár öðrum fremur sem olli þeim vanlíðan.

Til allrar hamingju tölum við meira núorðið.

 

Anton Helgi Jónsson er skáld í Reykjavík. Von er á nýrri ljóðabók eftir hann nú í vor.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283