Árni Páll Árnason hefur dregið formannsframboð sitt til baka eins og við greindum frá í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifaði örstutt um þá ákvörðun hans á Facebook í morgun:
“Las um ákvörðun Árna Páls í gærkvöldi. Ég er ekki viss um að þessi ákvörðun hafi verið rétt eða góð fyrir Samfylkinguna en hún var örugglega óumflýjanleg og hún er fullkomlega skiljanleg.
Árni Páll hefur sýnt meira úthald og seiglu en flestir hafa til að bera og á undanförnum vikum og mánuðum hefur hann sýnt og sannað úr hverju hann er gerður.
Ég dáist að þolgæði hans og heilindum í því lævi blandna lofti sem umlykur íslenska pólitík.
Árni Páll er drengur góður, það fékk ég sjálf að reyna í þeim hremmingum sem ég gekk í gegnum á árunum 2009 og 2010. Ég virði ákvörðun hans og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.“