Aðalfundur Kvenréttindafélags Íslands, sem haldinn var í gær, hvetur stjórnmálahreyfingar landsins að setja sér skýra stefnu í jafnréttismálum og gæta að kynjahlutföllum við uppstillingu á lista og í forystusæti.
Þá hvetur fundurinn kjósendur til að kynna sér jafnréttisstefnu allra stjórnmálaflokka áður en til kosninga er gengið. Kvenréttindafélag Íslands hvetur konur til að taka virkan þátt í stjórnmálabaráttunni. Kjósum konur!
Á fundinum var kosin ný stjórn Kvenréttindafélagsins: Dagný Ósk Aradóttir Pind, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir, Steinunn Stefánsdóttir og Tatjana Latinovic. Fríða Rós Valdimarsdóttir er formaður félagsins. Í varastjórn voru kosnar Ellen Calmon, Eyrún Eyþórsdóttir og Snæfríður Ólafsdóttir.